Héraðssýning í beinni útsendingu
Héraðssýning kynbótahrossa í Skagafirði fer fram dagana 29. maí – 2. júní nk.:
„Hæfileikadómar fara fram á Vindheimamelum og sköpulagsdómar í Hrímnishöllinni á Varmalæk.
Skráning: Leiðbeiningamiðstöðin 455-7100/ [email protected]
Tekið er á móti skráningum frá 18. maí til 22. maí. Gefa þarf upp fæðinganúmer.
Síðasti greiðsludagur 22. maí.
Skráningargjald fyrir fullnaðardóm er 18.500 kr og byggingadóm/hæfileikadóm 13.500 kr.
Reikningsnúmer: 1125-26-710 kt: 580901-3010
Sýningargjöld eru endurgreidd sé afskráð áður en sýningin hefst.
Munið:
DNA sýni þarf að hafa verið tekið úr öllum stóðhestum sem mæta til dóms sem og foreldrum þeirra.
Blóðsýni þarf að hafa verið tekið úr stóðhestum 5 vetra og eldri.
Röntgenmyndir þurfa að hafa verið teknar af stóðhestum 5 vetra og eldri og niðurstöður liggi fyrir í Worldfeng.
Hross sem hlýtur áverka á stigi 2 í dómi fær dómsniðurstöður ekki birtar í Worldfeng.
Hljóti hross áverka á stig 2 á yfirltissýningu er möguleg hækkun útilokuð.
Hestar sem hafa eistnagalla, spatt eða áverka á stigi 2 eru ekki verðlaunuð á kynbótasýningum.
Knapar þurfa að athuga hvernig reiðbrautin er afmörkuð, en það getur haft neikvæð áhrif á einkunn fyrir vilja og geðslag sé hrossi riðið útfyrir afmörkun brautarinnar.“
Beinar útstendingar og myndbandagerð á Hérðassýningu í Skagafirði
Ákveðið hefur verið að sýna yfirlitssýningu kynbótahrossa í Skagafirði í beinni útsendingu á veraldarvefnum. Það er Hrossaræktarsamband Skagfirðinga sem mun standa fyrir þessu verkefni í samstarfi við Viggó Jónsson og Árna Gunnarsson. Hér er um ákveðið tilraunaverkefni að ræða. Þannig ættu áhugasamir hrossaræktendur að geta fylgst með allri yfirlitssýningunni eða miðað við að vera við skjáinn á þeim tímum sem þau hross eru væntanleg í braut sem menn hafa áhuga á að sjá.
Þá verður einnig í boði að menn geta fengið upptökur af sýningum úr fordómnum. Þessa þjónustu þarf að panta fyrirfram og er gjaldið 5.000 kr. á hestinn. Kaupandi þjónustunnar mun þá fá afhentann disk með myndbandi af sínum hesti og verður trúlega hægt að afgreiða þetta á staðnum. Áhugasamir geta pantað þetta leið og þeir skrá hross til sýningar eða haft samband beint við Árna Gunnarsson (892-7707). Þetta er auglýst með fyrirvara um að ákveðin lágmarksþátttaka náist.
Skráning á sýninguna er í fullum gangi, en henni líkur á morgun, þriðjudaginn 22. maí. Tekið er á móti skráningum í síma 455-7100 eða [email protected].
Héraðssýningin fer fram á Vindheimamelum í næstu viku og endar með yfirlitssýningu laugardaginn 2. júní. Sköpulagsdómar fara fram í Hrímnishöllinni á Varmalæk.
Þetta kemur fram á vefsíðu hrossaræktarsambands Skagfirðinga.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH