Áhugamannadeild Norðurlands Herdís og Leana unnu töltið

  • 6. apríl 2025
  • Fréttir
Niðurstöður frá lokamóti Áhugamannadeildar Norðurlands

Það var mikið um dýrðir í Léttishöllinni á Akureyri í gær þegar lokamót Áhugamannadeildar Norðurlands fór þar fram. Óhætt er að fullyrða að deildin sé mikil lyftisstöng fyrir hestamennskuna á Norðurlandi sem sást bersýnilega á góðri mætingu áhorfenda og góðum sýningum knapa.

Mótið var sýnt í beinni útsendingu á EiðfaxaTV og var það okkur mikill heiður að fá að taka þátt í þessari deild með þeim hætti.

Keppt var bæði í tölti minna vanir (T7) og tölti meira vanir (T3).

Í flokki meira vanra var það Herdís Einarsdóttir og Griffla frá Grafarkoti sem stóðu uppi sem sigurvegarar með 6,94 í einkunn. Kolbrún Stella Indriðadóttir á Garúnu frá Grafarkoti endaði önnur með 6,89 í einkunn og þriðji varð Björgvin Helgason á Þyt frá Narfastöðum með 6,72 í einkunn.

Í tölti minna vönum var það Leana Raphaela Haag sem bar sigur út býtum á Smásjá frá Tunguhálsi en þær unnu einnig fjórganginn í deildinni. Þær leiddu eftir forkeppni með einkunnina 6,93 og unnu síðan með 7,0 í einkunn. Nokkrum kommum neðar var Fjóla Viktosdóttir á Muna frá Syðra-Skörðugili með 6,94 í einkunn og í þriðja sæti varð Guðmundur Sigfússon á Mídas frá Köldukinn 2 með 6.25 í einkunn.

Mjótt var á munum í liðakeppninni í tölti en það fór svo að lið Laugarhvamms sigraði. Í tölti T3 meira keppnsivanir sigraði Herdís Einarsdóttir á hryssunni Grifflu frá Grafarkoti og rétt á eftir henni var dóttir hennar Kolbrún Stella Indriðadóttir og Garún frá Grafarkoti. Í tölti T7 minna keppnisvanir voru einnig báðir liðsmenn í úrslitum, Eva-Lena Lohi með Draum frá Hvammstanga og Ragnar Smári Helgason með Kilju frá Grafarkoti. Einnig kepptu fyrir liðið í vetur Gréta B. Karlsdóttir og Jóhannes Ingi Björnsson með góðum árangri. Þjálfari liðsins er Elvar Logi Friðriksson.

Lið Laugarhvamms fagnar sigri í töltinu

Hér fyrir neðan eru heildarniðurstöður úr töltinu

Tölt T7 – Fullorðinsflokkur – 3. flokkur – A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Leana Anna Raphaela Haag Smásjá frá Tunguhálsi II 7,00
2 Fjóla Viktorsdóttir Muni frá Syðra-Skörðugili 6,92
3 Guðmundur Sigfússon Mídas frá Köldukinn 2 6,25
4-6 Eva-Lena Lohi Draumur frá Hvammstanga 6,00
4-6 Ragnar Smári Helgason Kilja frá Grafarkoti 6,00
4-6 Brynhildur Heiða Jónsdóttir Ásaþór frá Hnjúki 6,00

Tölt T3 – Fullorðinsflokkur – 2. flokkur – A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Herdís Einarsdóttir Griffla frá Grafarkoti 6,94
2 Kolbrún Stella Indriðadóttir Garún frá Grafarkoti 6,89
3 Björgvin Helgason Þytur frá Narfastöðum 6,72
4-5 Einar Kristján Eysteinsson Freyja frá Tjarnarlandi 6,50
4-5 María Ósk Ómarsdóttir Bragi frá Efri-Þverá 6,50
6 Spire Cecilina Ohlsson Flóra frá Dvergasteinum 6,00

Tölt T3 – Fullorðinsflokkur – 2. flokkur – Forkeppni

Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Herdís Einarsdóttir Griffla frá Grafarkoti 6,73
2 Kolbrún Stella Indriðadóttir Garún frá Grafarkoti 6,57
3 Björgvin Helgason Þytur frá Narfastöðum 6,43
4 María Ósk Ómarsdóttir Bragi frá Efri-Þverá 6,30
5 Greta Brimrún Karlsdóttir Brimdís frá Efri-Fitjum 6,27
6 Spire Cecilina Ohlsson Flóra frá Dvergasteinum 6,17
7 Einar Kristján Eysteinsson Freyja frá Tjarnarlandi 6,13
8 Svanur Berg Jóhannsson Stormur frá Feti 6,00
9 Sveinn Brynjar Friðriksson Vígablesi frá Djúpadal 5,90
10-11 Einar Ben Þorsteinsson Paradís frá Gullbringu 5,87
10-11 Kristín Hrönn Pálsdóttir Æður frá Kollaleiru 5,87
12-13 Bergþóra Sigtryggsdóttir Snerra frá Skálakoti 5,73
12-13 Aldís Ösp Sigurjónsd. Kort frá Meðalfelli 5,73
14 Valgerður Sigurbergsdóttir Kólga frá Akureyri 5,70
15 Ragnar Magnússon Svarthöfði frá Skriðufelli 5,67
16 Mathilde Larsen Staka frá Íbishóli 5,63
17-19 Eline Schriver Kleópatra frá Hofi 5,60
17-19 Camilla Johanna Czichowsky Júpíter frá Stóradal 5,60
17-19 Rósanna Valdimarsdóttir Sylgja frá Varmalæk 1 5,60
20 Hreinn Haukur Pálsson Aðalsteinn frá Auðnum 5,57
21 Guðrún Alexandra Tryggvadóttir Mói frá Varmalæk 5,50
22-23 Gracina Fiske Demantur frá Vindheimum 5,47
22-23 Guðmundur Þór Elíasson Fríða frá Varmalæk 1 5,47
24-25 Hallgrímur Anton Frímannsson Snotra frá Brekkugerði 5,37
24-25 Jón Kristófer Sigmarsson Giljagaur frá Hrafnagili 5,37
26 Steingrímur Magnússon Steini frá Skjólgarði 5,33
27 Magnús Fannar Benediktsson Hrafntinna frá Gullbringu 5,30
28 Camilla Munk Sörensen Sómi frá Borg 5,13
29 Ólöf Sigurlína Einarsdóttir Stika frá Skálakoti 5,07
30 Hjörleifur Helgi Sveinbjarnarson Vafi frá Dalvík 4,97
31 Valur Valsson Brana frá Flögu 4,90
32 Guðrún Margrét Steingrímsdóttir Þröstur frá Dæli 4,83

Tölt T7 – Fullorðinsflokkur – 3. flokkur – Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Leana Anna Raphaela Haag Smásjá frá Tunguhálsi II 6,93
2 Fjóla Viktorsdóttir Muni frá Syðra-Skörðugili 6,77
3 Guðmundur Sigfússon Mídas frá Köldukinn 2 6,30
4 Eva-Lena Lohi Draumur frá Hvammstanga 6,03
5 Brynhildur Heiða Jónsdóttir Ásaþór frá Hnjúki 6,00
6 Unnur Erla Sveinbjörnsdóttir Straumur frá Eskifirði 6,00
7 Ragnar Smári Helgason Kilja frá Grafarkoti 5,80
8 Melanie Hallbach Léttir frá Nautabúi 5,70
9-11 Sólbjört Júlía Óskarsdóttir Von frá Reyðarfirði 5,60
9-11 Örvar Már Jónsson Hrafnaklukka frá Stóra-Sandfelli 3 5,60
9-11 Rakel Eir Ingimarsdóttir Seimur frá Glæsibæ 2 5,60
12-13 Jóhannes Ingi Björnsson Andri frá Útnyrðingsstöðum 5,53
12-13 Þórir Áskelsson Hilmir frá Húsey 5,53
14 Gunnar Þórarinsson Gáski frá Svarfholti 5,50
15-17 Berglind Ösp Viðarsdóttir Fanndís frá Krossum 1 5,43
15-17 Ríkey Nótt Tryggvadóttir Tvistur frá Árgerði 5,43
15-17 Íris Ósk Jóhannesdóttir Júlí frá Hrísum 5,43
18 Sigrún Júnía Magnúsdóttir Trú frá Vatnsholti 5,37
19 Elín María Jónsdóttir Björk frá Árhóli 5,30
20-21 Sara Kjær Boenlykke Glæsir frá Hæli 5,20
20-21 Nele Mahnke Svörður frá Lækjamóti 5,20
22 Stefán Berg Ragnarsson Kolbeinn frá Skriðufelli 5,13
23 Ásdís Karen Hauksdóttir Aþena frá Hrafnagili 5,10
24 Jenny Larson Víkingur frá Hafnarfirði 4,93
25 Guðrún Agnarsdóttir Alda frá Hvalnesi 4,87
26 Jón Þór Sigurðsson Vigdís frá Jaðri 4,83
27 Kolbrún Halldórsdóttir Ósk frá Skarði 4,77
28 Pétur Ingi Grétarsson Sóldís frá Sauðárkróki 4,60
29-30 Aníta Ýr Atladóttir Oddrún frá Syðri-Hofdölum 4,43
29-30 Guðmundur Stefán Sigurðarson Rás frá Varmalæk 1 4,43
31 Felicitas Doris Helga Juergens Valkyrja frá Þverhamri 3 4,10
32 Sunna Júlía Þórðardóttir Sæstjarna frá Skorrastað 4 4,03
33 Friðrún Fanný Guðmundsdóttir Bárður frá Bergsstöðum 3,60
34 Soffía Jóhanna Majdotter Dalma Kolka frá Skagaströnd 3,50
35 Giulia Weitz Jörð frá Djúpadal 0,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar