Herkúles á þau afkvæmi sem hæsta einkunn hlutu fyrir sköpulag
Af þeim stóðhestum sem áttu 10 eða fleiri afkvæmi sýnd í fullnaðardómi á árinu hlutu afkvæmi Herkúlesar frá Ragnheiðarstöðum að meðaltali hæst fyrir sköpulag.
Nú er röðin komin að þeim eiginleikum sem dæmdir eru í sköpulagi og rýnum við í meðaltöl afkvæma þeirra stóðhesta sem eiga 1o eða fleiri sýnd afkvæmi í ár.
Alls eru 29 stóðhestar sem eiga 10 eða fleiri dæmd afkvæmi á árinu. Sá sem á flest afkvæmi með fullnaðardóm í ár er Konsert frá Hofi með 51 dæmt afkvæmi en þar á eftir eru þeir Skýr frá Skálakoti og Spuni frá Vesturkoti báðir með 37 sýnd afkvæmi. Með lægstan meðalaldur afkvæma er Draupnir frá Stuðlum en afkvæmi hans sem komu fram í ár voru einungis 4,3 vetra að meðaltali.
Herkúles frá Ragnheiðarstöðum, líkt og í fyrra, á þau afkvæmi sem hæstu einkunn hlutu fyrir sköpulag. Herkúles á 14 dæmd afkvæmi í fullnaðardómi í ár og er meðalaldur þeirra 5,9 ár. Afkvæmi hans sem til dóms komu eru samkvæmt þessu fallega sköpuð en þau hafa hæsta meðaltalið í þremur eiginleikum. Eiginleikarnir eru háls, herðar og bógar (me.8,50), samræmi (me.8,53) og prúðleiki (me.8,41). Þá er eins og áður segir meðaltal þeirra fyrir sköpulag hæst af þeim hestum sem eiga 10 fullnaðardæmd afkvæmi eða fleiri á árinu en þau hlutu 8,34 að meðaltali.
Þrír efstu hestar fyrir meðaleinkunn afkvæma fyrir eiginleikann háls, herðar og bógar
| Nafn | Fjöldi afkvæma | Meðalaldur | Háls, herðar, bógar |
| Herkúles frá Ragnheiðarstöðum | 14 | 5,9 | 8,50 |
| Sjóður frá Kirkjubæ | 20 | 6,3 | 8,48 |
| Hringur frá Gunnarsstöðum | 12 | 4,8 | 8,46 |
Þrír efstu hestar fyrir meðaleinkunn afkvæma fyrir eiginleikann samræmi
| Nafn | Fjöldi afkvæma | Meðalaldur | Samræmi |
| Herkúles frá Ragnheiðarstöðum | 14 | 5,9 | 8,53 |
| Hringur frá Gunnarsstöðum | 12 | 4,8 | 8,42 |
| Konsert frá Hofi | 51 | 5,1 | 8,41 |
Þrír efstu hestar fyrir meðaleinkunn afkvæma fyrir eiginleikann prúðleika
| Nafn | Fjöldi afkvæma | Meðalaldur | Prúðleiki |
| Herkúles frá Ragnheiðarstöðum | 14 | 5,9 | 8,41 |
| Ölnir frá Akranesi | 34 | 5,4 | 8,31 |
| Skýr frá Skálakoti | 37 | 5,3 | 8,19 |
Skaginn frá Skipaskaga á þau afkvæmi sem að meðaltalið hlutu hæstu einkunn fyrir höfuð eða einkunnina 8,23. Alls voru 10 afkvæmi Skagans sýnd í ár og meðalaldur þeirra var 4,9 ár.
Þrír efstu hestar fyrir meðaleinkunn afkvæma fyrir eiginleikann höfuð
| Nafn | Fjöldi afkvæma | Meðalaldur | Höfuð |
| Skaginn frá Skipaskaga | 10 | 4,9 | 8,23 |
| Herkúles frá Ragnheiðarstöðum | 14 | 5,9 | 8,22 |
| Draupnir frá Stuðlum | 11 | 4,3 | 8,16 |
Afkvæmi Hróðurs frá Refsstöðum hlutu að meðaltali hæstu einkunn fyrir bak og lend eða 8,59 í einkunn. Hróður átti 10 sýnd afkvæmi á árinu og meðalaldur þeirra er 6,2 ár. Afkvæmi Hróðurs voru einnig með hæstu meðaleinkunnina fyrir réttleika eða 8,09.
Þrír efstu hestar fyrir meðaleinkunn afkvæma fyrir eiginleikann bak og lend
| Nafn | Fjöldi afkvæma | Meðalaldur | Bak og lend |
| Hróður frá Refsstöðum | 10 | 6,2 | 8,59 |
| Hringur frá Gunnarsstöðum | 12 | 4,8 | 8,35 |
| Hrannar frá Flugumýri II | 30 | 5,6 | 8,32 |
Þrír efstu hestar fyrir meðaleinkunn afkvæma fyrir eiginleikann réttleika
| Nafn | Fjöldi afkvæma | Meðalaldur | Réttleiki |
| Hróður frá Refsstöðum | 10 | 6,2 | 8,09 |
| Ölnir frá Akranesi | 34 | 5,4 | 8,00 |
| Viti frá Kagaðarhóli | 13 | 5,7 | 7,96 |
Hreyfill frá Vorsabæ á þau afkvæmi sem hæstu einkunn hlutu fyrir fótagerð eða 8,45 var meðaltal einkunna þeirra. Hreyfill átti 11 sýnd afkvæmi á árinu og meðalaldur þeirra var 5,5 ár.
Þrír efstu hestar fyrir meðaleinkunn afkvæma fyrir eiginleikann fótagerð
| Nafn | Fjöldi afkvæma | Meðalaldur | Fótagerð |
| Hreyfill frá Vorsabæ | 11 | 5,5 | 8,45 |
| Skýr frá Skálakoti | 37 | 5,3 | 8,41 |
| Jarl frá Árbæjarhjáleigu | 13 | 6,5 | 8,27 |
Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum, samkvæmt þessari töflu, skilar bestu hófunum en meðaltal einkunna afkvæma hans er 8,55 fyrir þann eiginleika. Álfarinn átti 10 sýnd afkvæmi á árinu en meðalaldur þeirra var 5,6 ár.
| Nafn | Fjöldi afkvæma | Meðalaldur | Hófar |
| Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum | 10 | 5,6 | 8,55 |
| Arion frá Eystra-Fróðholti | 29 | 5,8 | 8,40 |
| Spuni frá Vesturkoti | 37 | 6,8 | 8,35 |
Hér fyrir neðan má sjá meðaltals einkunnir afkvæma allra þeirra stóðhesta sem eiga 10 eða fleiri fullnaðardæmd afkvæmi á árinu í öllum eiginleikum dæmdum í sköpulagi.
| Nafn | Fjöldi afkvæma | Meðalaldur | Höfuð | Háls, herðar, bógar | Bak og lend | Samræmi | Fótagerð | Réttleiki | Hófar | Prúðleiki | Sköpulag |
| Herkúles frá Ragnheiðarstöðum | 14 | 5,9 | 8,22 | 8,50 | 8,25 | 8,53 | 8,25 | 7,78 | 8,22 | 8,41 | 8,34 |
| Skýr frá Skálakoti | 37 | 5,3 | 7,91 | 8,31 | 8,29 | 8,41 | 8,41 | 7,76 | 8,35 | 8,19 | 8,28 |
| Skaginn frá Skipaskaga | 10 | 4,9 | 8,23 | 8,42 | 8,08 | 8,35 | 8,04 | 7,73 | 8,31 | 7,77 | 8,21 |
| Konsert frá Hofi | 51 | 5,1 | 7,91 | 8,31 | 8,24 | 8,41 | 8,21 | 7,72 | 8,23 | 7,60 | 8,21 |
| Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum | 10 | 5,6 | 7,95 | 8,36 | 8,14 | 8,18 | 8,14 | 7,73 | 8,55 | 7,59 | 8,20 |
| Sjóður frá Kirkjubæ | 20 | 6,3 | 8,10 | 8,48 | 8,17 | 8,21 | 7,83 | 7,67 | 8,33 | 8,12 | 8,20 |
| Ölnir frá Akranesi | 34 | 5,4 | 7,88 | 8,27 | 8,21 | 8,31 | 7,94 | 8,00 | 8,28 | 8,31 | 8,19 |
| Draupnir frá Stuðlum | 11 | 4,3 | 8,16 | 8,41 | 7,94 | 8,28 | 8,19 | 7,88 | 8,34 | 7,56 | 8,19 |
| Arion frá Eystra-Fróðholti | 29 | 5,8 | 7,81 | 8,27 | 8,31 | 8,34 | 8,00 | 7,56 | 8,40 | 7,32 | 8,17 |
| Eldur frá Torfunesi | 11 | 6,3 | 7,73 | 8,30 | 8,00 | 8,23 | 8,27 | 7,87 | 8,27 | 8,00 | 8,16 |
| Hróður frá Refsstöðum | 10 | 6,2 | 8,14 | 8,27 | 8,59 | 8,18 | 8,09 | 8,09 | 7,73 | 7,64 | 8,16 |
| Spuni frá Vesturkoti | 37 | 6,8 | 7,91 | 8,27 | 8,18 | 8,16 | 8,05 | 7,86 | 8,35 | 7,69 | 8,15 |
| Ómur frá Kvistum | 33 | 6,4 | 7,91 | 8,21 | 8,09 | 8,26 | 8,22 | 7,66 | 8,26 | 7,74 | 8,14 |
| Hringur frá Gunnarsstöðum | 12 | 4,8 | 7,69 | 8,46 | 8,35 | 8,42 | 7,81 | 7,77 | 7,88 | 7,15 | 8,14 |
| Hnokki frá Fellskoti | 23 | 5,5 | 8,06 | 8,38 | 8,06 | 8,21 | 7,85 | 7,67 | 8,23 | 7,85 | 8,13 |
| Hreyfill frá Vorsabæ | 11 | 5,5 | 7,95 | 8,32 | 7,82 | 8,09 | 8,45 | 7,73 | 8,14 | 8,00 | 8,11 |
| Kiljan frá Steinnesi | 14 | 6,8 | 7,83 | 8,23 | 8,27 | 8,30 | 7,90 | 7,67 | 8,20 | 7,20 | 8,11 |
| Trymbill frá Stóra-Ási | 16 | 5,9 | 8,16 | 8,38 | 8,13 | 8,06 | 7,69 | 7,78 | 8,25 | 7,50 | 8,09 |
| Hrannar frá Flugumýri II | 30 | 5,6 | 7,64 | 8,16 | 8,32 | 8,30 | 7,92 | 7,65 | 8,22 | 7,08 | 8,09 |
| Álfasteinn frá Selfossi | 15 | 7,1 | 8,00 | 8,41 | 8,03 | 8,22 | 8,09 | 7,56 | 7,91 | 7,41 | 8,09 |
| Loki frá Selfossi | 18 | 6,8 | 7,71 | 8,21 | 7,93 | 8,24 | 7,88 | 7,69 | 8,33 | 7,67 | 8,07 |
| Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum | 11 | 5,3 | 7,83 | 8,17 | 8,00 | 8,21 | 7,88 | 7,75 | 8,25 | 7,29 | 8,05 |
| Álfur frá Selfossi | 27 | 7,2 | 8,00 | 8,23 | 7,76 | 8,15 | 7,98 | 7,52 | 8,29 | 7,81 | 8,05 |
| Viti frá Kagaðarhóli | 13 | 5,7 | 7,79 | 8,21 | 8,18 | 8,07 | 7,82 | 7,96 | 8,14 | 7,25 | 8,04 |
| Óskasteinn frá Íbishóli | 16 | 6,6 | 7,80 | 8,20 | 8,08 | 8,25 | 7,93 | 7,50 | 8,03 | 7,35 | 8,03 |
| Stáli frá Kjarri | 35 | 6,7 | 7,62 | 8,15 | 8,04 | 8,31 | 7,77 | 7,68 | 8,12 | 7,28 | 8,02 |
| Jarl frá Árbæjarhjáleigu | 13 | 6,5 | 7,69 | 8,08 | 7,92 | 8,08 | 8,27 | 7,81 | 8,19 | 7,35 | 8,02 |
| Arður frá Brautarholti | 10 | 6,6 | 7,91 | 8,09 | 7,91 | 8,00 | 7,91 | 7,82 | 8,27 | 7,50 | 8,00 |
| Krákur frá Blesastöðum 1A | 10 | 8,4 | 7,65 | 8,05 | 7,85 | 7,90 | 7,75 | 7,85 | 8,05 | 7,90 | 7,91 |
Ef þú ert að skoða töfluna í síma er hægt að færa sig fram og til baka á töflunni til þess að sjá alla eiginleika.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH