Herrakvöld Fáks á laugardag
Fákur boðar til fagnaðar á laugardagskvöld:
„Hreindýr, gæs, svartfugl og aðrar villibráðarkræsingar verða á boðstóðum á Villibráðarhlaðborði Herrakvölds Fáks sem verður nk. laugardagskvöld í félagsheimili Fáks (matseðillinn á heimasíðu Fáks). Jón Þorberg Steindórsson (Beggi) eftirherma og brandarakarl verður veislustjóri og Ari Eldjárn mun verða með uppistand og síðan verður dansað fram á rauða nótt.
Miðaverð aðeins kr. 7.000 og að sjálfssögðu frítt fyrir konur, dömur og stúlkur eftir kl. 23:30
Miðasala í Skalla (koma með 7.000 kall í peningum og málið dautt) og Reiðhöllinni (kort og pen.)
Fordrykkur í boði Vífifells
Virðulegur klæðnaður skilyrði.
Forpartý um allan bæ – bara að troða sér í einhvert þeirra og mæta áður en borðhaldið hefst kl. átta en húsið opnar kl. 19:00
Allir velkomnir og skemmtilegir hestamenn úr öðrum félögum eru sérstaklega velkomnir.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH