Hestablaðið 5. tölublað 2012 komið út

  • 24. maí 2012
  • Fréttir
Úttekt, viðtöl fréttir og fróðleikur

Hestablaðið, 5. tölublað, er komið út. Í blaðinu LM2012 í Úttekt og farið yfir helstu atriði í miðaverði, skipulagi á svæði, aðkomu, og svo framvegis. Nýtt skipulag svæðisins miðar að því að mynda kjarna í kring um aðalvöllinn (Hvammsvöllinn) og Reiðhöllina, þar sem aðal veitingasala og markaðstorg verður staðsett.

Sagt er frá breyttu umhverfi í sæðingum hér á landi, en æ fleiri hrossabú bjóða nú upp á sæðingar við stóðhestum heima á búunum. Reiðmaðurinn og Skeifudagurinn á Hvanneyri er í fréttum, auk spretta og frétta af keppnis- og sýningahrossum.

Helga Thoroddsen skrifar grein um hvernig velja á hest fyrir byrjendur og hvaða kostum hann þarf að vera búinn. Fannar Ólafsson, framkvæmdastjóri og einn nýrra eigenda Íshesta er í viðtali, en Íshestar eiga 30 ára afmæli á þess ári.

John Kristinn Sigurjónsson, knapi á Þrumufleygi frá Álfhólum, Konserti frá Korpu og fleiri hrossum er í viðtali. Fjallað er um legbólgur og ófrjósemi í hryssum, sem hugsanlega er að aukast samhliða auknu skipulagi og úrvali í hrossaræktinni, þar sem ekki er valið sérstaklega fyrir frjósemi.

Að lokum er sagt frá tilgátu, sem á marga stuðningsmenn á meginlandinu og er sú að hestar sem eru þjálfaðir og hitaðir upp fyrir reiðtúr eða keppni í svokölluðum rollkur, og hross sem eru „bundin“ inn eins og það er kallað hér á landi. framleiði undir því álagi endorfín í því magni að þeir verði fyrir miklum dópáhrifum (endorfín/morfín linar sársauka og eykur vellíðan), sem sé skýringin á því hvers vegna þeir eru svo „góðir“ þegar þeir losna úr prísundinni.

Hægt er að kaupa áskrift að Hestablaðinu í síma 511-6622.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link