Hestablaðið – STÓÐHESTAR OG HROSSARÆKT komið út
Hestablaðið – „STÓÐHESTAR OG HROSSARÆKT“ fór í póst til áskrifenda í morgun. Í næstu viku verður blaðið fáanlegt í lausasölu á N1 bensínstöðvum, hestavöruverslunum og blaðsölustöðum. Í blaðinu eru upplýsingar um á annað hundrað stóðhesta og þykkur bunki af bragðmiklu lesefni fyrir þá sem þyrstir í fróðleik og upplýsingar um hrossarækt.
Í blaðinu er sú nýbreytni að að nokkur stór hrossabú auglýsa stóðhesta sína og starfssemi á þremur síðum, og fleiri auglýsa stóðhesta og hrossabú á einni til tveimur síðum.
Þetta gefur tóninn um fyrirhugað form blaðs á næstu árum, en stefnt er að því að hverfa smám saman úr hefðbundnu „Stóðhestablaðs formi“ yfir í alhliða upplýsinga- og afþreyingarrit um hrossarækt. Þetta er þriðja „Stóðhestablað“ Hestablaðsins og það tekjuhæsta til þessa. Í haust kemur út sambærilegt tímarit um hrossarækt, keppni og almenna hestamennsku, sem ef að líkum lætur, verður ennþá þykkra og efnismeira.
MEÐAL EFNIS:
Úttekt á kybótahrossunum á Auðsholtshjáleigu, ræktunarbúi ársins 2011
Fagleg útlistun á kynbótaskipulagi eftir Kristinn Hugason.
Spádómar um verðandi Sleipnisbikarhafa eftir Valdimar Kristinsson.
Úttekt á ferli Markúsar frá Langholtsparti eftir Valdimar Kristinsson.
Spáð í Bluppið þar sem farið er yfir stöðu bestu og efnilegustu stóðhestanna í töflum og texta.
Grein eftir Einar E. Gíslason, sem segir að heiðursverðlaun stóðhesta fyrir afkvæmi í dag séu engin heiðursverðlaun. Taka þurfi upp afkvæmaprófanir fyrri tíma til að setja þröskuld upp í heiðursverðlaun.
Upplýsingar frá leiðbeiningaþjónustu hrossaræktarinnar (BÍ) um ræktunarmarkmið og stigunarkvarða kynbótahrossa.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH