Hestaferð Stíganda
Hestaferð Stíganda 2015 verður farin 8. og 9.ágúst. Brottför frá Silfrastaðarétt kl 14 á laugardeginum 8.ágúst og riðið sem leið liggur í Heiðarland en farið verður fram að vestan hjá Egilsá og Borgargerði en þar verður að teyma.
Ef einhverjir verða með rekstur þá fer hann fram ganginn að austan. Grillað um kvöldið í Heiðarlandi. Gisting og morgunmatur daginn eftir verður riðið fram í dalinn ef áhugi er fyrir hendi og síðan niður í Blönduhlíð og hver til síns heima, hægt að geyma hesta á Miklabæ ef einhver vill. Verði stillt í hóf.
Þáttöku þarf að tilkynna fyrir 6.ágúst hjá Moniku í síma 864 0820 eða Agnari í síma 895 4123.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH