Hestaíþróttir krefjast ekki snertingar
Hestaíþróttir krefjast ekki snertingar eða nálægðar við aðra knapa eða þjálfara við æfingar. Reiðhallir stærri hestamannafélaga eru frá 1200-2100 fermetrar að stærð og rúma vel allt að 10 manns. Kennsla í hestaíþróttum er yfirleitt einstaklingsbundin á svæði sem er frá 300 fermetrum. Hestamannafélögunum er gert að hafa reiðhallirnar lokaðar.
Við erum komin á þann tíma ársins að veður og færi valda því að oft er ekki hægt að stunda æfingar úti. Þá er nauðsynlegt, ef ekki hreinlegaöryggisatriði, að iðkendur hafi aðgang að inniaðstöðu í reiðhöllum hestamannafélaganna.
Nýjustu sóttvarnarreglur eru óskiljanlegar og ósanngjarnar gagnvart hestaíþróttum.
Svo vitnað sé í reglugerð ráðherra:
- Sundlaugar eru að opna.
- Í verslunum mega 5 manns vera á hverja 10 fermetra.
- Kennsla í ökunámi og flugnámi er leyfð með notkun andlitsgrímu. Þá er alls kyns þjónustu eins og hársnyrti-, nudd- og sólbaðsstofum leyft að hafa opið.
- Opnunartími veitingastaða er lengdur og þeim er heimilt að taka við 15 manns í rými.
Hestamannafélög geta auðveldlega framfylgt 10 manna samkomubanninu í sínum reiðhöllum og þá er kennsla í reiðhöllinni margfalt öruggari en til dæmis ökukennsla eða hársnyrting vegna stærðar æfingasvæðis.
Þolinmæði hestamanna fyrir sóttvarnarreglum er að þverra.
Verði reiðhallir ekki opnaðar má búast við að iðkendur hætti við að taka hross sín á hús í vetur. Mun það hafa keðjuverkandi áhrif á afkomu fjölda fólks sem hefur atvinnu af því að temja, járna, kenna, selja hey og svo koll af kolli.
Þá er óskiljanlegt að við gerð nýjustu sóttvarnarreglna hafi ekki verið tekið tillit til litakóðakerfis sem íþróttahreyfingin hefur unnið fyrir heilbrigðisráðuneyti. Þar eru íþróttir flokkaðar með tilliti til áhættu við smit og skoraði hestaíþróttin lægst í því kerfi.
Skorum við á heilbrigðisráðherra að endurskoða þessar reglur og leyfa opnun reiðhalla með sömu takmörkunum og skilgreindar eru í reglugerð ráðherra.
Einar Gíslason
Framkvæmdastjóri hestamannafélagsins Fáks
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH