Hestaleikhús, formannsskipti og FT fjöður
Árið 2014 var viðburðarríkt ár á sviði hestamennskunnar. Í dag og á morgun munum við birta örstutta annála og rifja upp tíðindi ársins. Við byrjum á síðastliðnum vetri:
- Mikil ísing var á reiðvegum í byrjun vetrar á höfuðborgarsvæðinu sem gerði hestamönnum erfitt fyrir.
- Nýtt hestaleikhús leit dagsins ljós en Fákasel opnaði í byrjun árs.
- Nýjar siðareglur kynbótadómara voru samþykktar en þar kom m.a. fram að þeir einstaklingar sem hafa hrossarækt, hrossasölu eða stóðhestahald sem sitt aðalstarf séu ekki tækir til þess að dæma hér á landi.
- Gunnlaugur Antonsson tók sér ársleyfi frá störfum ábyrgðarmanns hrossaræktar. Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir, fagstjóri búfjárræktarsviðs hjá Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins, tók við ábyrgðarmannahlutverki í hrossarækt.
- Sveinn Steinarsson tók við sem formaður fagráðs í hrossarækt.
- Ákveðið var að sameina Íslandsmótsyngri flokkanna og fullorðna sem haldið yrði hjá hestamannafélaginu Fáki.
- FT fjöðrin var veitt í fyrsta sinn en Þorvaldur Árni Þorvaldsson var fyrstur til að hljóta þessa viðurkenningu fyrir léttleikandi reiðmennsku og einstaka útgeislun.
- Gunnar Sturluson tók við formennsku FEIF.
- Hestamannafélagið Sprettur vígði reiðhöll sína. Hún er ein sú glæsilegasta á landinu en hún er alls um 4000 fm.
- Sérstakar lágmarkseinkunnir voru settar fyrir klárhross fyrir kynbótasýningarnar á Landsmóti.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH