Hestaleit gerir hestaleit auðveldari
Hestaleit.is er tiltölulega ný heimasíða á sviði hestamennskunnar. Hún hefur fengið mikla notkun og er komin til að vera. Um er að ræða sölusíðu fyrir hross þar sem fólk getur skráð söluhross frítt, með ljósmynd og kvikmynd. Vefurinn er byggður upp á svipaðan hátt og bílasöluvefir, með fjölda valmöguleika til að auðvelda leit.
Vefurinn er tengdur við WorldFeng, þannig að upplýsingar um hrossið skrást sjálfkrafa inn á sölusíðuna þegar kennitala hrossins er sett inn. Ekki er hægt að skrá hross til sölu á Hestaleit.is, sem ekki er skráð í WorldFeng. Um sex þúsund manns (tölvur) heimsækja Hestaleit.is í hverri viku og flettingar eru 55 þúsund, samkvæmt upplýsingum frá Hestaleit.is. Hver heimsækjandi er um sjö mínútur á vefnum í hverri heimsókn. 960 virk söluhross eru nú skráð á vefinn.
Í heild hafa 1600 hross verið skráð þar til sölu frá hinum ýmsu löndum. Síðan er á ensku, dönsku og sænsku, og innan skamms munu útgáfur á norsku og sænsku bætast við. Á Hestaleit.is er einnig stóðhestavefur þar sem eigendur stóðhesta geta skráð inn hesta frítt. Eigendur Hestaleitar.is eru Játvarður Davíð Ingvarsson, hestamaður í Mosfellsbæ, og Davíð Fannar Gunnarsson.
Styttu haustið með EiðfaxaTV