Hestamannafélagið Funi 60 ára – Umfjöllun í Eiðfaxa Sumar
Jóhann Frímannsson frá Gullbrekku situr hér á hesti sínum Funa sem Hestamannafélagið er nefnt eftir. Mynd: Aðsend
Nýjasta tímarit Eiðfaxa er nú farið í prentvélarnar, stútfullt af skemmtilegu efni og fróðleik.
Í tímaritinu er m.a. að finna umfjöllun um Hestamannafélagið Funa í Eyjafirði en sextíu ár eru nú frá stofnun félagsins. Hér segir frá fyrstu árum félagsins
Fyrstu árin var haldin árlega kappreiða- og góðhestasýning á Melgerðismelum en þar byggðist síðan upp sífellt betri aðstaða til sýninga og mótahalds. Þessum fyrstu mótum og úrslitum þeirra eru gerð góð skil í fyrstu fundargerðabók félagsins. Á fyrsta mótinu 6. ágúst 1961 sigraði í flokki alhliða góðhesta hesturinn „Sleipnir, brúnskjóttur, glæsilegur alhliðahestur með léttar hreyfingar og ljúfan vilja“ í eigu Sigríðar Pálmadóttur, Æsustöðum. Í flokki tölthesta sigraði hesturinn Funi, rauðstjörnóttur 6 vetra, „fríður, reistur áferðafagur töltari“.
Félagið vann ötullega að því fyrstu árin að tryggja tamningu hrossa í héraðinu með íhlut í rekstri tamningastöðva. Einnig var leitað eftir góðum stóðhestum til notkunar enda byggði félagið á gömlum merg í hrossarækt og margir þekktir ræktendur meðal félagsmanna. Með aðkomu Funa og fleiri hestamannafélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu er Hrossaræktarsamband Eyjafjarðar og Þingeyjasýslna stofnað 1970.
Tryggðu þér áskrift að Eiðfaxa, fáðu hann sendan heim að dyrum og styddu um leið við faglega umfjöllun um íslenska hestinn og allt það sem honum tengist með því að smella hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH