Hestamannafélagið Jökull býður upp á frumtamningarnámskeið
Hestamannafélagið Jökull stendur fyrir frumtamninganámskeiði í október í samstarfi við reiðkennarana Valdísi Björk og Jón Óskar á Brekku í Biskupstungum.
„Námskeiðið hefst föstudaginn 7. október og kenndar verða næstu þrjár helgar, þ.e. 7.-9. október, 14.-16. október og 21.-23. október,“ kemur fram í tilkynningu frá félaginu
Fyrirkomulag helganna verður þannig að föstudagarnir byrja á sýnikennslu, síðan verða 4-5 reiðtímar yfir helgina, blanda af einka- eða hóptímum. Innifalið í verðinu er hádegismatur á námskeiðsdögum og stía fyrir hrossið yfir helgina. Verð fyrir námskeiðið er 50.000 og fer skráning fram á Sportabler. Skráning hefst fimmtudagskvöldið 1. september kl 20:00
Valdís og Jón Óskar eru bæði menntaðir tamningamenn og reiðkennarar frá Háskólanum á Hólum. Þau reka tamningastöð á Brekku, en einnig hafa þau gert það gott í keppni og kynbótasýningum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH