Hestamannahittingur
Þá er komið að Grillveislu ferðanefnda hestamannafélaganna Léttfeta, Stíganda og Svaða. Stefnan er tekin á létta kvöldskemmtun með söng og glensi í Melsgili kl 20.00 þann 26.júní.
Á staðinn mætir hinn heimsfrægi Guðjón Viðar trúbador með gítarinn og Riddarakórinn. Einnig mun Ari stjórna fjöldasöng. Svo eitthvað sé nefnt. Vonast ferðanefndirnar til að sjá sem flesta hestamenn og aðra. Kostnaði verður haldið í lámarki. Skrá þarf í matinn fyrir fimmtudag 24. júní. Skráning og nánari upplýsingar hjá Söru 895 6417, Bjössa 898 5455, Ara 893 6673 og Sigfríði 866 9906.
Ferðanefndirnar
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH