Hestamenn hvattir til að safna í lið í áhugamannadeildinni

  • 13. ágúst 2020
  • Fréttir

Undirbúningur er hafinn fyrir sjöunda keppnisárið í Áhugamannadeild  Spretts. Equsana mun verða aðal styrktaraðili deildarinnar næstkomandi vetur eins og 3 sl ár.

Síðastliðinn vetur var mjög litaður af því fordæmalausa ástandi sem Covid-19 veiran bauð uppá en þó tókst að ljúka mótaröðinni á glæsilegan hátt. Lokamótið var haldið utandyra þann 12 maí og voru úrslitin mjög spennandi.
Við höldum ótrauð áfram og stefnum á glæsileg mót árið 2021 og hafa dagsetningar löngu verið teknar frá.
Mótaröðin 2021 verður með breyttu fyrirkomulagi þar sem ákveðið hefur verið að keppni í skeiði í gegnum höllina verður ekki ein af keppnisgreinum mótaraðarinnar. Höldum þó sama fyrirkomulaginu og við gerðum í töltinu þar sem allir fimm knapar liðsins hafa leyfi til að tefla fram öllum fimm knöpum liðsins en einungis þrjár efstu einkunnir gilda til stigagjafar og einungis þrír efstu knapar hvers liðs eru gjaldgengir í úrslit að lokinni forkeppni.
Tólf af fimmtán liðum Equsana deildarinnar 2020 hafa áunnið sér keppnisrétt fyrir árið 2021. En það eru þrjú lið sem falla úr deildinni eftir keppnisárið 2020 skv. reglum deildarinnar og eru það lið Geirland-Fákafar, Ísey skyrbar og Landvit.
Þau lið sem unnið hafa sér keppnisrétt verða að staðfesta við forsvarsmenn deildarinnar áframhaldandi þátttöku fyrir 26 ágúst 2020 ásamt liðskipan. Hvert lið hefur fimm knapa.

Ný lið sem áhuga hafa á að koma í deildina þurfa að skila inn umsóknum fyrir 30 ágúst. Umsókninni þurfa að fylgja staðfest nöfn fimm knapa liðsins. Dregið verður úr umsóknum Metamótshelginni okkar í Spretti eða á laugardeginum 5 september.

Þau lið sem féllu úr deildinni 2020 geta sótt um aftur og fara í pottinn ásamt nýjum liðum sem sækja um. Það eru þrjú sæti laus í Equsana deildinni 2021.

Umsóknir sendist á linda@cargo.fo fyrir 30 ágúst n.k.

Við minnum á reglur Áhugamannadeildar Spretts – liður 7 – um hvaða knapar hafa keppnisrétt í deildinni.
7. Keppendur í Áhugamannadeildinni – inngangsskilyrði
7.1. Knapar sem hafa töluverða reynslu af keppni en deildin er ekki byrjendadeild.
7.2. Knapar sem ekki hafa keppt í F1, V1, T1, T2 eða Meistaradeild seinustu 3 ár.
7.3 Öll gæðingakeppni, á öllum stigum, og kappreiðar er undanskilin þ.e.a.s. heimilt er að keppa í gæðingakeppni og kappreiðum án þess að það hafi áhrif á inngangskilyrði.
7.4 Þessar reglur gilda um öll mót, einnig innanhúsmót.
7.5 Knapar sem lokið hafa reiðkennaranámi á háskólastigi hafa ekki keppnisrétt.
7.6 Knapar sem hafa ekki haft laun af tamningu eða þjálfun hesta seinustu 3 ár
– 7.7 Villiköttur í Meistaradeild hefur ekki leyfi til að keppa í Áhugamannadeild
7.8 Lágmarksaldur keppenda í Áhugamannadeild er 22 ár.
7.9 Stjórn Áhugamannadeildar Spretts hefur loka ákvörðunarvald um hvort knapar uppfylla inngangskilyrði
Íslandsmót 2020 er undanskilið þ.e.a.s. keppni á Íslandsmóti hefur ekki áhrif á inngangskilyrði í Áhugamannadeild 2021

Dagsetningar móta 2021 hafa verið ákveðnar – með fyrirvara um niðurröðun greina.
Fimmtudagur 4 febrúar – Fjórgangur
Fimmtudagur 18 febrúar – Fimmgangur
Fimmtudagur 4 mars : Slaktaumatölt
Fimmtudagur 18 mars : Tölt – lokamótið

Hvetjum hestamenn að safna saman í lið og sækja um í Equsana deildinni 2021.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar