Sigurður Tyrfingsson er í framboði fyrir Flokk fólksins

  • 21. september 2021
  • Fréttir
Hestamenn í framboði
Eins og flestir landsmenn vita þá eru kosningar framundan. Eiðfaxi hafði samband við nokkra hestamenn sem eru í framboði og fékk þá í smá spjall um stefnumál sín. Hestamaðurinn úr Spretti, Sigurður Tyrfingsson ríður á vaðið en hann er í framboði fyrir Flokk fólksins.

 

Hestamaðurinn Sigurður Tyrfingsson, fasteignasali og húsasmíðameistari er í framboði fyrir Flokk fólksins og skipar 3.sæti í Suðvesturkjördæmi. Sigurður er fyrrverandi stjórnarmaður í hestamannafélaginu Spretti og er nefndarmaður í Mannvirkjanefnd LH.

Af hverju eiga hestamenn að kjósa Flokk Fólksins? 

Vegna þess að þá ertu að kjósa flokk sem er fyrir fólkið í landinu en ekki sérhagsmunahópa. Það sem ég brenn fyrir er að afnema verðtryggð húsnæðislán, sem er eitt af aðalstefnumálum Flokks Fólksins. Formaður Hagsmunasamtaka heimilina Ásthildur Lóa Þórsdóttir, oddviti í Suðurkjördæmi, hefur barist fyrir afnámi verðtryggingar á lánum heimilanna, þess vegna er mikilvægt fyrir fólkið í landinu að hún komist á þing. Mín persónulega skoðun er sú að leggja eigi niður lífeyrissjóðakerfið sem eru að mínu mati eitt mesta meinið í íslensku þjóðfélagi í dag! Ríkið á að taka yfir lífeyrisjóðakerfið sem er ekkert annað en skattheimta þar sem misvitrir menn eru að gambla með fé og ræna fólk ævisparnaði. Rekstrarkostnaður íslensku lífeyrisjóðanna nemur ríflega 25 milljörðum króna á ári. Gjörspilt kerfi.

Við í Flokki Flokksins ætlum að útrýma fátækt og óréttlæti á Íslandi, svo að allir fái lifað mannsæmandi lífi. Lífsgæði eru ekki einkaréttur útvalinna.

Flokkur fólksins vill afnema verðtryggingu, af hverju?  

Við ætlum að afnema verðtryggingu húsnæðislána. Við viljum að almenningi verði heimilt að endurfjármagna verðtryggð lán með óverðtryggðum lánum án þess að undirgangast lánshæfis- og greiðslumat. Verðtryggð lán eru flókin afleiðulán sem eru hvergi í heiminum í boði sem húsnæðislán neytenda nema hér á Íslandi. Afleiðingar verðtryggingar eru miklu meiri en við gerum okkur grein fyrir, hún veldur t.d. bæði verðbólgu og hærra vaxtastigi en annars væri. Verðtrygging lána heimilanna hefur verið svo lengi við lýði á Íslandi að það virðist næstum óhugsandi að afnema hana. En er það virkilega svo? Hún eins og svo margt annað, er mannanna verk og afnám hennar væri besta kjarbót sem hugsast getur fyrir öll heimili, hvort sem þau eru til sjávar eða sveita, og hvort sem fjölskyldur borga af lánum eða eru í leiguhúsnæði því leiga er nánast alltaf verðtryggð.

Hver er skoðun þín í auðlindamálum ?

Við viljum fyrst og fremst að þjóðin fái að njóta auðlinda sinna og fái fullt verð fyrir sameiginlegan aðgang að auðlindum sínum. Við viljum nýja nýtingarstefnu fiskimiðanna þar sem auðlindir okkar eru sameign þjóðarinnar en ekki einkaeign fárra útvalinna sægreifa.  Þeir sem nýta auðlindir þjóðarinnar t.d veiðiheimildir, orku o.fl og eru uppvísir að skattaundanskotum eða einhverju misjöfnu, eiga umsvifalaust að sæta því að vera sviptir heimildum til að nýta auðlindir íslensku þjóðarinnar.

Ein áhugaverðasta auðlind Íslands er íslenski hesturinn.

Hann á stóran þátt í því að setja Ísland á kortið sem áfangastað ferðamanna, tugþúsundir útlendinga heimsækja Ísland eingöngu vegna íslenska hestsins. Stór hópur fólks hefur atvinnu af hestamennsku, með því að rækta hross, temja, þjálfa, kaupa og selja. Hestamennska á Íslandi er mjög stór atvinnugrein og ein fjölmennasta  íþróttagreinin að meðtöldum öllum sem stunda hestamennsku og eru ekki skráðir í hestamannafélög. Stjórnvöld og stjórnmálamenn verða að gera sér grein fyrir því hve heimur Íslandshestsins er mikilvægur fyrir land og þjóð.

Hver er stefna Flokks Fólksins um stofnun Hálendisþjóðgarðs og verndun hálendi Íslands?

Við erum alfarið á móti Hálendisþjóðgarði. Við styðjum ekki takmarkanir á ferðafrelsi almennings innanlands til að njóta eigin náttúru. Hálendið er unaðsreitur sem má ekki stofnanavæða í formi þjóðgarðs með tilheyrandi ráðherraræði á kostnað almannaréttar og almannahagsmuna. Aðför að lýðræði, forsjárhyggja, boð og bönn er eitthvað sem mér hugnast alls ekki.

Þú segir að Flokkur fólksins hafi heilbrigðismál á oddinum, hvað skiptir mestu máli þar?

Númer eitt, tvö og þrjú, þarf að eyða biðlistum. Það er algjörlega til háborinnar skammar að í einu ríkasta landi heims, þurfi fólk að bíða og þjást að óþörfu. Við viljum efla heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni þar sem aðstaðan er nú þegar víða fyrir hendi, en stendur algjörlega ónotuð. Það nær t.d. ekki nokkurri átt að allar konur þurfi að „fara suður“ til að fæða börn, með tilheyrandi raski og kostnaði.

Nú ert þú fasteignasali og húsasmíðameistari, hvað viltu segja okkur um húsnæðismál landans ?

Lóðaskortur á höfuðborgarsvæðinu og fleiri stöðum er helsta meinið á íbúðamarkaði. Það er engin samkeppni í byggingariðnaðinum. Verktakar og fjárfestar komast upp með að byggja íbúðarhúsnæði með ofurgróða, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu. Sveitastjórnir þurfa að hysja upp um sig buxurnar og úthluta byggingalóðum á sem því næst kostnaðarverði.

Stefna Flokks Fólksins í málefnum námsmanna er áhugaverð, hvað viltu segja um hana?

Við viljum veita námsfólki frelsi til að afla tekna án lánaskerðinga. Námsmenn eru mjög mikilvægir fyrir atvinnulífið. Styrkja þarf menntakerfið og sérstaklega þarf að hlúa að verknámi þar á meðal hestatengdu námi. Vísa þurfti 700 umsækjendum frá iðnnámi haustið 2021, nú þegar er mikil vöntun á iðnaðarmönnum. Væri ekki ráð að bjóða iðnfyrirtækjum þessa nema í starfsþjálfun og ríkið greiði hluta launa? Vinningur fyrir alla aðila, ríkið, fyrirtækið og ekki síst nemann sem fær innsýn í starfið og gerir upp hug sinn í framhaldinu.

Hvernig ætlar Flokkur Fólksins að fjármagna kosningaloforð?

Við krefjumst réttlætis fyrir alla í ríku landi. Við skulum byrja á því að gera það að forgangsmáli að enginn þurfi að líða skort vegna fátæktar hérlendis, síðan kemur fjármögnuni í kjölfarið. Við bendum á þessar leiðir: 

  1. Við viljum afnema undanþágu lífeyrissjóða til að halda eftir staðgreiðslu skatta við innborgun í sjóðina.
  2. Við ætlum að færa persónuafsláttinn frá þeim ríku til hinna efnaminni. Það er sanngjarnt, réttlátt og eðlilegt.
  3. Fullt verð verði innheimt fyrir aðgang að sjávarauðlindinni.
  4. Við viljum innleiða bankaskattinn á ný.
  5. Við viljum hreinsa til í kerfinu og draga úr hvers konar óþarfa útgjöldum ríkissjóðs.

Fyrir hvern eru sveitarstjórnir og stjórnvöld ? Fyrir fólkið í landinu en ekki fyrir  sérhagsmunahópa og fáa útvalda !

Flokkur Fólksins er hvorki vinstri/ hægri eða miðju flokkur, heldur flokkur sem er fyrir fólkið í landinu, alls ekki flokkur sérhagsmunahópa. Hann er flokkur fyrir alla sem búa á Íslandi, líka fyrir innflytjendur. Við hvetjum einstaklinginn til sjálfsbjargar og við munum aldrei refsa né skerða tekjur þeirra sem vilja og geta bjargað sér sjálfir.

Við þökkum Sigurði kærlega fyrir spjallið og óskum honum alls hins besta í komandi kosningum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link