Hestamenn í skötustuði

  • 29. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Mörg hestamannafélög með skötuveislu

Mörg hestamannafélög hafa tekið upp þann skemmtilega og þjóðlega sið að bjóða upp á saltfisk og skötu fyrir jólin. Hestamannafélagið Sóti á Álftanesi hefur haldið skötuveislu í mörg herrans ár og er líklega það félag sem reið á vaðiðí þessum efnum. Alla vega með þeim fyrstu. Fleiri hestamannafélög hafa fetað slóðina og má þar nefna Sörla í Hafnarfirði og Létti á Akureyri. Veislurnar njóta mikilla vinsælda, enda kærkomið tækifæri til að hitta vini og kunningja í leiðinni.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link