Hestar hjálpa einhverfum
Einhverfa er röskun í taugaþroska sem hefur víðtæk áhrif á líf fólks. Fólk með einhverfu á oft erfitt með að tjá sig, það getur átt í erfiðleikum með að mynda tengsl við aðra og bregst ekki alltaf á viðeigandi hátt við ýmsum áreitum í umhverfinu. Tilgátur hafa verið settar fram um að börn með einhverfu eigi auðveldara með að eiga í samskiptum við dýr en við mannfólkið. Tungumál er flókið fyrirbæri og hindrar í mörgum tilfellum börn með einhverfu í samskiptum við önnur börn eða fullorðna.
Niðurstöður rannsókna hafa meðal annars sýnt fram á að börn með einhverfu hegða sér mismunandi eftir því hvort þau eru í samskiptum við menn eða dýr. Þau sýna dýrunum hegðun sem þau sýna mannfólkinu sjaldan eða jafnvel aldrei. Í nánd við dýrin getur dregið úr ótta, kvíða, ofvirkni og óviðeigandi hegðun. Ekki er vitað ástæðu þessara niðurstaðna en Samskipti við dýr byggja ekki á orðaskiptum og eru því auðveldari fyrir börnin.
Gerð hefur verið einstök heimildarmynd þar sem segir frá einhverfum dreng og foreldrum hans þar sem hestar spila stórt hlutverk í bataferli hans. Þau halda í ferðalag á hestbaki um Mongólíu í leit að hjálp fyrir son sinn með óhefðbundnum lækningum.
Rowan Isaacson var greindur með einhverfu þegar hann var tveggja ára. Hann talaði ekki, hélt sig til hlés eða fékk erfið reiðiköst án sjáanlegrar ástæðu. Hinsvegar tók faðir hans eftir því að honum leið vel þegar hann komst í snertingu við náttúruna. Þegar Rowan var orðinn fimm ára og þeir feðgar voru í göngutúr úti í skógi hljóp hann í burtu frá föður sínum. Hann hélt í átt að litlu stóði, skreið undir girðinguna og fór inn til hestanna. Faðir hans var mikill hestamaður en hann hafði haldið honum frá hestunum, vegna þess að hann vissi aldrei hvað drengurinn myndi taka til bragðs.
Það var þá í fyrsta skipti sem Rowan tjáði sig með orðum. Hannn lagðist á bakið á meðan hestarnir komu þefuðu af honum og talaði við þá.
Upp úr þessu fór Rowan á hestbak á hverjum degi, og var mikið í kringum hesta. Framfarirnar hjá honum urðu svo miklar að foreldrar hans ákváðu að halda í ferð um Mongólíu á hestbaki, þar sem þau upplifðu mikla breytingu á syni sínum. Þau fóru með óviðráðanlegt barn sem gat ekki tjáð sig á skiljanlegan máta. En komu til baka með barn tjáði sig án reiðiskasta og gat haft samskipti við umhverfi sitt og annað fólk.
Bæði hefur verið skrifuð bók og gerð mynd eftir þessari einstöku sögu, sem veitt hefur foreldrum einhverfra barna innblástur um allan heim.
Heimildir: www.einhverfa.is
www.horseboyfoundation.org
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH