Hestar í draumum

  • 11. desember 2012
  • Fréttir
Hestar í draumum

Nú í skammdeginu er ansi freistandi að leggast undir voð og láta sig hverfa inn í draumalandið . Draumar og draumráðningar hafa fylgt landanum í gegnum tíðina, enda er þeirra víða getið í Íslendingasögunum og öðrum bókmenntum. Trú margra er að draumar geti verið fyrirboðar og tákn ókominnar framtíðar. 

Hestar eru táknrænir í draumum og litir þeirra afgerandi í draumráðningum. Dreymi ógifta stúlku að hún stígi á bak stórum, viðráðanlegum og fallegum hesti er það fyrir gjörvilegum manni og góðri giftingu. Hvítir hestar eru happatákn, þeim fylgir gleði glaumur og hamingja. Séu þeir aftur á móti svartir þarf að hafa varann á því það er ógæfutákn og von á slæmum tíðindum. Sæki jólastressið að, þykir ekki gott að dreyma hlaupandi hesta, því það er fyrir fljótræði.  Jólagjafirnar þarf að ígrunda vel áður en eitthvað er keypt í blindni.  

Rauðir hestar boða ánægju, skemmtun og gleðileg jól.  Varast skal að dreyma gráskjóttan hest yfir hátíðarnar, því hann táknar gjálífi og sukksemi. Gott þykir að dreyma jarpan hest á nýju ári því hann táknar velgengni í framtíðinni. Allra verst er þó að dreyma bleika hesta því þá eru veikindi eða feigð í aðsigi.

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link