Hestar sóttir heim
Icelandic Horse Expo er vikulöng hátíð sem verður haldin dagana 7.-12. apríl. Þar taka aðilar og félagasamtök í hestamennsku höndum saman ásamt ferðaþjónustunni við að halda alþjóðlegan, hestatengdan viðburð á Íslandi.
„Á þeim stöðum sem heimsóttir verða í ár er fjöldinn allur af frægum hrossum. Hestarnir eru í raun aðal gestgjafarnir og hlýtur það að vera mikil upplifun að sækja þá heim og komast í návígi við stjörnurnar,“ segir Hrafnkell Guðnason í viðtali við Eiðfaxa.
Kynning á Icelandic Horse Expo má nálgast í 1. tölublaði Eiðfaxa. Hægt er að panta áskrit í síma 511 6622 eða í gegnum tölvupóstfangið [email protected].
Margareterhof er selt
Átta hlutu gullmerki LH
Suðurlandsdeildin áfram á EiðfaxaTV
Heim í hlað – Ný þáttaröð á EiðfaxaTV