Hestarnir komnir út
Í nótt flugu hestarnir út sem eiga að keppa fyrir Íslandshönd í Herning í Danmörku eftir rúma viku. Guðmundur Björgvinsson og Árni Björn Pálsson fylgdu hrossunum út. Voru hestarnir lentir í Danmörku um kl. 10:00. Það voru þau Gunnar Arnarsson og Kristbjörg Eyvindsdóttir sem fluttu hestana út en þau reka útflutningsfyrirtæki HorseExport.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH