Hestasirkus og harmonikkuspil
Frá sýningunni Æskan og hesturinn 2015.
Sýningin Hestafjör 2015 verður haldið í reiðhöll Sleipnis að Brávöllum, Selfossi sunnudaginn 19. apríl og hefst hátíðin kl. 13.30 að er fram kemur í tilkynningu frá Æskulýðsnefnd Sleipnis.
„Fram koma sýningarhópar barna, unglinga og ungmenna frá hestamannafélögum á Suðurlandi. Skrautreið og ýmsar þrautir. Ingó veðurguð, hestasirkus, leynigestur, hamonikkuspil, veitingasala, og fleiri góðir gestir. Frítt inn meðan húsrúm leyfir. Kynnir er Páll Bragi Hólmarsson.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH