Hestasýningar vegna 150 ára afmælis Akureyrar
Akureyrarbær verður 150 ára afmæli á þessu ári og að því tilefni biðlar hestamannafélagið Léttir til hestamanna í Eyjafirði.
„Hestamannafélagið Léttir hefur ákveðið að gefa afmælisbarninu tvær hestasýningar á flötinni framan við Samkomuhúsið, þá fyrri n.k miðvikudag 25 júlí kl 20.00.
Og þá seinni á sjálfan afmælisdaginn miðvikudaginn 29. ágúst.
Til að þetta sé gerlegt þurfum við hestamenn að sameinast og mæta með okkar hesta á sýninguna sem verður með sama sniði og var þá og þegar Léttir var með vikulegar sýningar á flötinni á síðasta áratug síðustu aldar. Allir eru velkomnir að taka þátt í sýningunni, vanir óvanir, ungir sem gamlir og allt þar á milli, allskonar hestar, góðir gæðingar og aðrir góðir reiðhestar. Ein regla er ófrávíkjanleg, Til að taka þátt í sýningunni. Vertu í lopapeysu eða Léttisbúningi.
Til að skipuleggja þetta allt saman er boðað til opins fundar í reiðhöllinni á mánudagskvöldið 23. júlí kl. 20.00. Vonandi fjölmennum við hestamenn þar og undirbúum þessa góðu afmælisgjöf handa bænum okkar,“ segir í tilkynningu frá undirbúningsnefnd Léttis.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH