Hestaþing Kóps og Sindra
Sameiginlegt Hestaþing Hestamannafélaganna Kóps og Sindra verður haldið 24.júní á Sindravelli við Pétursey. Mótið er líka úrtaka fyrir fórðungsmót.
Skráning er hafin á Sportfeng og stendur til kl 23.59 mánudaginn 19.júní. Mótið er opið og verður keppt verður í eftirfarandi flokkum ef næg þátttaka næst: Polla-, barna-, unglinga- og ungmennaflokki og A, B og C -flokki gæðinga. Tölti T3 og T7 og 100 m flugskeiði.
Það eru vegleg verðlaun í T3 og T7 og fleiri flottir vinnngar
Skráningargjöld í ungmennaflokk, A-flokk B-flokk og C flokk er kr. 5.000.- Í barna og unglinga 2000,- Í tölti er skráningargjaldið 6000.- Engin skráningargjöld eru í pollaflokk og kappreiðum.
Skráning telst ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist og staðfesting á henni á tölvupóstfangið [email protected] . Skráning er á www.sportfengur.com.
Afskráningar og skráningar í pollaflokk og kappreiðar þurfa að berist á netfangið [email protected]
Ef vandamál koma upp við skráningu er hægt að hafa samband við Kristínu Lár í síma 8980825
Dagskrá og ráslistar verða birtir á lhkappa eftir að skráningu lýkur. Hlökkum til að sjá sem flesta.
Stjórnir og mótanefndir Kóps og Sindra
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Landsliðsteymi Danmerkur fyrir árið 2027 klárt