Hestaþing Snæfellings

  • 13. júlí 2015
  • Fréttir
Keppt í gæðingakeppni og tölti.

Opin gæðingakeppni í Stykkishólmi, sunnudaginn 26. júlí 2015. Keppt verður í A-flokki, B-flokki, C-flokki (fet,tölt og brokk, má nota písk.), ungmennaflokki, unglingaflokki, barnaflokki, tölt T3 opnum flokki, T7 lítið vanir (hægt tölt svo snúið við, frjáls ferð á tölti), T7 17 ára og yngri (hægt tölt svo snúið við, frjáls ferð á tölti) og pollaflokki, skráning á staðnum og kostar ekkert.

Skráð í gegnum Sportfeng í A, B, ungmenna, unglinga, barnaflokk og töltið. En í c-flokk  er skráð hjá Arnari í netfangið [email protected]. Lagt inná reikning 191-26-00876 kennitala 4409922189 og senda kvittun á [email protected] Skráningfrestur  í alla flokka er fram á miðnætti miðvikudaginn 22. júlí

Farið inn á þessa slóð: www.sportfengur.com og smellið á SKRÁNINGAKERFI vinstra megin á síðunni (fyrir
neðan Login hnappinn, athugið að ekki á að logga sig inn á SportFeng). Á forsíðu skráningakerfisins er smellt á
Skráning í valmynd og síðan á flipann Mót. Áframhaldið rekur sig sjálft, munið bara að skrá einnig upp á hvora
hönd þið þið ætlið að ríða og að fara í Vörukörfu að skráningu lokinni og að klára þar öll skref í ferlinu.
Ganga þarf frá greiðslu skráningagjalda með innlögn á bankareikning en þær upplýsingar koma
fram í skráningarferlin. Athugið að skráningin verður ekki virk fyrr en gjaldkeri hefur merkt
við að greiðsla hafi borist!

Gjaldið er 3000 kr.  á skráningu en  í Barnafl. og tölt 17 ára og yngri er 2000 kr.  Síðasti dagur skráninga er miðvikudagurinn 22  júlí  á miðnætti og það sama gildir um greiðslu skráningagjalda. Ekki verður hægt að skrá eftir að skráningafrestur rennur út. 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link