Hestaveisla á Stöð2 Sport
Stöð 2 Sport ætlar að sýna landsmönnum frá helstu viðburðum í vetur tengda hestum. Þeir munu sýna beint frá Meistaradeildinni í hestaíþróttum einnig ætlar þeir að gera Meistaradeild Norðurlands og öðrum mótum góð skil.
„Flottustu fákar og bestu knapar landsins verða á Stöð 2 Sport í vetur. Við sýnum beint frá Meistaradeildinni í hestaíþróttum og verðum með samantektarþætti í umsjón Telmu Tómasson eftir hvert mót. Við gerum einnig Meistaradeild Norðurlands, KS-deildinni og öðrum mótum góð skil. Ekki missa af sannkallaðri hestaveislu!“
Dagskrá vetrarins er þessi:
Dagskrá Meistaradeildar í hestaíþróttum
21. jan. Kynning á liðum
22. jan. Kynning á liðum
23. jan. Fjórgangur (Bein útsending)
30. jan. Samantekt og spjall
6. feb. Gæðingafimi (Bein útsending)
13. feb. Samantekt og spjall
20. feb. Fimmgangur (Bein útsending)
27. feb. Samantekt og spjall
6. mars Tölt (Bein útsending)
13. mars Samantekt og spjall
22. mars Skeiðgreinar úti (Bein útsending)
27. mars Samantekt og spjall
4. apríl Slaktaumatölt, lokahátíð (Bein útsending)
10. apríl Samantekt og spjall
Aðrir hestaþættir
13. feb. KS-deildin Úrtaka
27. feb. Opna Bautamótið í tölti, Skautahöllinni Akureyri
13. mars KS-deildin Fjórgangur
13. mars Ístölt á Svínavatni, Neisti Blönduósi
27. mars KS-deildin Fimmgangur
10. apríl KS-deildin Tölt
17. apríl KS-deildin Lokakeppni
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH