Hestur framtíðarinnar
Hrossaræktarsamtök Suðurlands verða með fræðslu- og umræðufund um hrossarækt mánudaginn 19. mars 2018 í Fáksheimilinu í Viðidal kl.20.00 – 22.30. Fundurinn er öllum opinn.
Áhugasamir um íslenska hrossarækt og hestamennsku eru hvattir til að mæta og ræða: Hvernig viljum við sjá framtíðarhestinn beita sér?
Markmið með fundinum er að skapa umræður um mikilvægi þess að hafa rétta líkamsbeitingu hests afdráttarlausari í ræktunarstarfinu en nú er.
Olil Amble, Svanhildur Hall og Magnús Lárusson verða með stutta framsögu og fjalla um í líkamsbeitingu, andlegt ástand og hreyfingar hests og samspil þessara þátta hver á annan. Í kjölfarið verða umræður.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH