Hesturinn í góðum haga

  • 12. mars 2013
  • Fréttir
Hesturinn í góðum haga

…er hugsað vel um þitt hross, er haginn í lagi…

Námskeiðið er haldið í samstarfi Endurmenntunar LbhÍ, Landssamband hestamannafélagaFélag hrossabænda og Landgræðslu ríkisins.
Námskeiðið er einkum ætlað hestamönnum, eigendum beitarlands og starfsmönnum sveitarfélaga sem sinna landnýtingarmálum.
Á námskeiðinu fjallar Bjarni Maronsson, Landgræðslu ríkisins, um áhrif hrossabeitar á gróður og jarðveg og mismunandi beitarskipulag fyrir hross. Einnig verða kynntar aðferðir til að meta beitarástand lands, landlæsi og fjallað um leiðir til úrbóta vegna hrossabeitar.
Staður: Félagsheimili hestamannafélagsins Fáks í Víðidal, Reykjavík.
Stund: þri. 19. mars kl. 19:45-22:30Skráningarfrestur miðast við 14. mars.
Verð: 3500 kr (fræðsla, gögn og molasopi).
Skráning og greiðsla þátttökugjalds fer fram um heimasíðuna www.lbhi.is/namskeid
Þar má einnig finna yfirlit námskeiða á vegum Endurmenntunar LbhÍ.
P.s. þú mátt gjarnan koma þessu á framfæri innan þíns hestamannafélags eða hesthúsahverfis,“ segir í tilkynningu frá LbhÍ

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link