Hestvænt í Hestablaðinu

  • 26. mars 2013
  • Fréttir
Hestvænt í Hestablaðinu

í Hestablaðinu, sem kemur út á morgun, miðvikudaginn 25. mars er viðtal við Lindu Karen Gunnarsdóttur, sem hefur stofnað vefverslunina Hestvænt.is. Linda Karen er mikill dýravinur og hefur setið í stjórn Dýraverndarsambands Íslands og Dýraverndarráði. Markmið hennar er að flytja inn og kynna hestvæn reiðtygi og annan varning fyrir reiðhesta.

Beisli án méla er orðið nokkuð þekkt hér á landi og á fjórða hundrað beisla er í umferð. Linda Karen segir að beislið sé betri „bremsur“ en beisli með mélum, en það þurfi að sjálfssögðu að kenna hestunum á það. Hesvænt flytur einnig inn svokallaðar ThinLine dýnur undir hnakka, sem eru þekktar í hestaheiminum fyrir mikla virkni og dempun fyrir bæði hest og knapa.

Hægt er að kaupa áskrift að Hestablaðinu og Eiðfaxa í síma 511-6622

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link