Hilmar hrossaræktandi ársins hjá Andvara
Á aðalfundi Hrossaræktarfélags Andvara sem haldinn var 20. nóvember sl. var Hilmar Sæmundsson valinn ræktunarmaður ársins fyrir ræktun sína á stóðhestinum Grím frá Efsta – Seli IS2006186644. Grímur hlaut í einkunn: sköpulag: 8.46, hæfileikar 8.38 , aðaleinkunn 8.41. Auk þess fóru tvær hryssur frá Hilmari i dóm með ágætis árangri.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn Hrossaræktarfélags Andvara.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH