Hinn síungi Stefán

  • 1. ágúst 2012
  • Fréttir
Stefán Friðgeirsson var elsti knapinn sem tók þátt í keppni á LM2012

Stefán Friðgeirsson í hestamannfélaginu Hring á Dalvík var elsti knapinn sem þátt tók í keppni á LM2012 í Reykjavík. Hann er fæddur 1947 og er því 65 ára. Stefán hefur stundað hestamennsku frá því hann man eftir sér og tamið og sýnt mörg hross um dagana. Má þar nefna Baldur frá Bakka, í úrslitum í A flokki á LM1998 á Melgerðismelum, og Dag frá Strandarhöfði, í úrslitum á LM2006 á Vindheimamelum auk þess sem Dagur hefur verið fremstu röð fimmgangshesta um árabil. Eins og sjá má á myndinni er ekkert sem bendir til að Stefán sé að hætta, þvert á móti er hann á svipinn eins og hann sé rétt að byrja.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link