Hjálmadagar í Líflandi

  • 6. mars 2013
  • Fréttir
Hjálmadagar í Líflandi

Lífland styður við átaksverkefni Þórdísar Erlu í hjálmanotkun sem nú er í gangi. Átakið hefur fengið nafnið Klárir Knapar og hefur farið mjög vel af stað og fengið mikla umfjöllun. Í tengslum við þetta verkefni Þórdísar Erlu ætlar Lífland að hafa hjálmadaga í verslunum sínum í marsmánuði. Veittur er 15% afsláttur af öllum hjálmum til 31. mars.  Starfsfólk mun einnig aðstoða fólk við stillingar á bæði nýjum og notuðum hjálmum. 

Síðar í mánuðinum er fyrirhugaður sérstakur hjálmadagur þar sem Þórdís Erla heimsækir Lífland og veitir viðskiptavinum aðstoð við val á hjálmum.

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link