Hleypum að yngra fólki

  • 1. september 2014
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Teitur Árnason talar fyrir kynslóðaskiptum.

Teitur Árnason er í forsíðuviðtali í Eiðfaxa að þessu sinni. Ferill Teits hefur náð nýjum hæðum á árinu, samt því að standa sig vel á keppnisbrautinni og í kynbótasýningum fékk hann FT-fjöðrina fyrir góða reiðmennsku á Landsmótinu. Þá er hann meðal ötulustu skeiðreiðmanna landsins og setti meðal annars Íslandsmet í 150 metra skeiði.  

Hér er brot úr viðtalinu, sem nálgast má í 8. tbl. Eiðfaxa en áskrifendur geta lesið það hér í tölvutæku formi.

Þegar rætt er um framtíðina þá segist Teitur vilja færa sig meira yfir í kynbótasýningar en hann er nú í ár búinn að sýna tæpan tug hrossa og gengið vel. Hæstan hæfileikadóm hlaut hryssa sem hann á sjálfur en það er Ársælsdóttirin Freyja frá Baldurshaga sem hlaut 8,54 fyrir kosti en hæsta aðaleinkunn hlaut Skagastrandarhryssan Þorlfríður 8,41 í aðaleinkunn og frænka hennar tveimur kommum lægra.

„Það er nauðsynlegt í mínum huga að það fái að verða kynslóðaskipti í þessu og okkur yngri knöpunum veittir fleiri möguleikar til þess að sýna. Það er nauðsynlegt í mínum huga að það fái að verða kynslóðaskipti í þessu og okkur yngri knöpunum veittir fleiri möguleikar til þess að sýna. Nú síðustu ár hafa verið að koma inn nýir knapar á brautina sem eiga eflaust eftir að láta að sér kveða á næstu árum. Það verður líka að hleypa yngra fólki að,“ segir Teitur og leggur áherslu á orð sín.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link