HM 2017 í Hollandi
Það verður veisla á næsta ári þegar heimsmeistaramót íslenska hestsins fer fram í Oirschot í Hollandi og án efa hafa margir knapar sett stefnuna í landslið Íslands sem mun keppa þar fyrir Íslands hönd.
Mótið mun standa dagana 7. – 13. ágúst og er mótssvæðið það sama og þegar mótið var haldið 2007. Úrval Útsýn mun koma Íslendingum á mótið og býður uppá þrenns konar ferðir á mótið. Ákveðin upphæð af hverri ferð mun renna beint til íslenska landsliðsins og munu því þeir sem ferðast með Úrval Útsýn verða beinir stuðningsaðilar landsliðsins okkar í hestaíþróttum.
Um tvö hótel er að ræða, annars vegar Art Eindhoven og hins vegar Hampshire Crown og eru þau bæði staðsett í miðborg Eindhoven. Innifalið í verði hverrar ferðar er flug og skattar, akstur til og frá flugvelli erlendis, gisting með morgunverði í 7 nætur, vikupassi á mótið og „Spekingar spjalla“ fundur með léttum veitingum. Verð ferðar er frá kr. 184.900 og fást allar nánari upplýsingar á vef Úrvals Útsýnar hér fyrir neðan.
https://www.urvalutsyn.is/ithrottir/hm-islenska-hestsins-2017/
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH