HM var „hreinn íþróttaviðburður“
Mánaðarlega sendir FEIF frá sér rafrænt fréttabréf og kynnir ýmsa viðburði sem eru á dagskrá samtakanna. LH birtir þýddan úrdrátt úr bréfinu en hægt er að nálgast fréttir og gerast áskrifandi af fréttablaðinu hér:
- Í septemberútgáfu fréttabréfsins er m.a. kynnt FEIF ráðstefnan sem fram fer í Stokkhólmi 2.-4. mars n.k. Nánari upplýsingar verða birtar þegar nær dregur.
- Í lok október verður haldin menntaráðstefna á vegum FEIF og verður hún samtvinnuð alþjóðlegri hestavísindaráðstefnu í Hollandi í lok mánaðarins. Frekari upplýsingar má finna með því að smella hér.
- Heimsmeistaramótið í Austurríki reyndist vera „hreinn íþróttaviðburður“, þ.e. í blóðprufum sem teknar voru úr keppnishestunum fundust engin ólögleg efni. Yfir 10% þátttökuhestanna var prófaður að þessu sinni og var dregið um hvaða hestur færi í lyfjapróf í forkeppni og úrslitum. Þetta eru sannarlega ánægjulegar fréttir og niðurstöður.
- Íþróttadómarapróf verða haldin á búgarði Piet Hoyos í Semriach í Austurríki dagana 7.-9. október í tengslum við „Steierische Landesmeisterschaften“. Bæði er hægt að taka próf til réttindanna „Alþjóðlegur íþróttadómari“ og „Landsdómari“. Skráningar fara fram hjá landssamböndum hvers lands fyrir sig.
A landsliðshópur Íslands