HM2009: Með aðra hönd á tölthorninu
Ekkert nema slys kemur í veg fyrir að Jóhann Skúlason á Hvini frá Holtsmúla verði heimsmeistari í tölti á HM2009. Hann reið glæsilegt prógram í forkeppninni í dag og fékk 8,43 í einkunn. Tindur frá Varmalæk og Kraftur frá Bringu hjá heimsmeisturunum Stian Petersen og Þórarni Eymundssyni virðast hins vegar heillum horfnir og komust hvorugur í úrslit.
Stian varð heimsmeistari í tölti og fjórgangi á Jarli frá Miðkrika 2007 og hugðist verja titilinn í tölti á Tindi. Hesturinn virtist þó alls ekki tilbúinn í slaginn í dag frekar en í fimmganginum í gær. Þórarinn varð heimsmeistari í fimmgangi á Krafti 2007 og annar í tölti. Þeir hafa tvisvar orðið Íslandsmeistarar í báðum greinum á sama móti. Kraftur var ekki nema svipurinn af sjálfum sér en fékk þó 6,73 í einkunn og 12. sætið.
Ásta Bjarnadóttir, USA, átti óvæntan stórleik í töltinu á Dynjanda frá Dalvík, Andvarasyni frá Ey. Margir muna eftir Atla Guðmundssyni á þessum hesti í Meistaradeild VÍS fyrir nokkrum árum. Dynjandi hefur þróast mjög skemmtilega. Er með hægar, stórar og sleppandi hreyfingar á hægu tölti. Þó ekki léttur né kátur. Í heildina var prógrammið vel útfært. Einkunn yfir átta, sem er frábært hjá Ástu.
Reynir frá Hólshúsum var mun betri nú en á NM08. Í fallegra formi og hressilegri. Sýningin hjá Hjalta var vel útfærð og sannfærandi. Góð heildarmynd þótt af og til hafi verið grunnt á hliðstæðu. Hjalti er með 7,77 og þriðja sætið. Í fjórða sæti er Þjóðverjinn Uli Reber á Dröfn frá Litla-Moshvoli og í fimmta sæti Þorvaldur Árni Þorvaldsson á B-Moll frá Vindási. Hann keppir að sjálfssögðu fyrir Ísland.
Röð eftir forkeppni:
01: 008 Jóhann R Skúlason [WC] [IS] – Hvinur frá Holtsmúla 1 8.43
PREL 8.3 – 8.3 – 8.7 – 8.8 – 8.3
02: 161 Ásta D. Bjarnadóttir-Covert [US] – Dynjandi frá Dalvík 8.07
PREL 7.8 – 8.0 – 8.0 – 8.2 – 8.3
03: 148 Hjalti Guðmundsson [SE] – Reynir frá Hólshúsum 7.77
PREL 7.8 – 7.7 – 7.7 – 8.5 – 7.8
04: 087 Uli Reber [DE] – Dröfn frá Litla-Moshvoli 7.70
PREL 8.2 – 7.3 – 7.7 – 7.7 – 7.7
05: 016 Þorvaldur Á. Þorvaldsson [IS] – B-Moll (Moli) frá Vindási 7.67
PREL 7.3 – 7.5 – 7.7 – 7.8 – 7.8
06: 149 Jan Berntsson [SE] – Embla från Smedjegården 7.23
PREL 7.2 – 7.5 – 6.7 – 7.5 – 7.0
07: 082 Lena Trappe [DE] – Vaskur von Lindenhof 7.13
PREL 7.2 – 7.3 – 7.2 – 7.0 – 7.0
08: 033 Lucia Koch [AT] – Jarl frá Miðkrika 7.00
PREL 7.0 – 7.0 – 7.5 – 7.0 – 7.0
08: 178 Sandra Weber [CH] – Glanni frá Ægissíðu 7.00
PREL 7.2 – 6.5 – 7.0 – 6.8 – 7.3
10: 127 Anne Stine Haugen [NO] – Muni frá Kvistum 6.83
PREL 6.7 – 6.8 – 6.7 – 7.2 – 7.0
11: 007 Haukur Tryggvason [IS] – Baltasar von Freyelhof 6.80
PREL 6.5 – 7.2 – 6.5 – 7.2 – 6.7
12: 015 Þórarinn Eymundsson [WC] [IS] – Kraftur frá Bringu 6.73
PREL 6.7 – 6.8 – 6.7 – 7.0 – 6.2
13: 115 Jessie Huijbers [YR] [NL] – Mist van de Waaldijk 6.70
PREL 6.7 – 6.8 – 6.7 – 6.7 – 6.5
14: 009 Linda Rún Pétursdóttir [YR] [IS] – Örn frá Arnarstöðum 6.63
PREL 6.7 – 6.7 – 6.0 – 6.7 – 6.5
15: 176 Oliver Egli [CH] – Dengsi frá Selfossi 6.57
PREL 6.3 – 6.3 – 6.7 – 6.7 – 6.7
16: 100 Benjamin Niederkofler [IT] – Kolur frá Flagbjarnarholti 6.33
PREL 6.5 – 6.0 – 7.0 – 6.3 – 6.2
17: 110 Anjo Blom [YR] [NL] – Agla von Saringhof 6.23
PREL 6.5 – 6.2 – 6.8 – 5.8 – 6.0
17: 133 Stian Pedersen [WC] [NO] – Tindur frá Varmalæk 6.23
PREL 6.0 – 6.7 – 6.2 – 6.0 – 6.5
19: 057 Laura Midtgård [DK] – Herkules fra Pegasus 6.17
PREL 6.5 – 6.7 – 6.2 – 5.5 – 5.8
20: 151 Josefin Birkebro [YR] [SE] – Kjarni von Wallberg 6.13
PREL 6.2 – 6.0 – 6.0 – 6.2 – 6.2
21: 130 Elise Lundhaug [YR] [NO] – Hrynjandi frá Fageräng 6.07
PREL 5.8 – 6.5 – 5.8 – 6.2 – 6.2
21: 131 Mia Eckhoff [YR] [NO] – Þór frá Ketu 6.07
PREL 6.0 – 6.2 – 6.2 – 6.0 – 5.2
23: 126 An-Magritt Morset [NO] – Hvatur frá Hvítanesi 6.00
PREL 5.7 – 6.3 – 5.5 – 6.5 – 6.0
24: 081 Laura Steffens [YR] [DE] – Mjöllnir von Waldhof 5.93
PREL 6.3 – 5.7 – 5.8 – 6.3 – 5.7
25: 054 Ellen Pedersen [YR] [DK] – Örn frá Grímshúsum 5.87
PREL 6.0 – 5.8 – 5.7 – 6.2 – 5.8
26: 170 Caroline Wyser [YR] [CH] – Líbrant frá Baldurshaga 5.77
PREL 5.7 – 5.8 – 5.3 – 5.8 – 5.8
27: 070 Jacques Pailloncy [FR] – Fjölnir frá Brekkum 5.70
PREL 5.5 – 6.0 – 5.8 – 5.8 – 5.2
28: 180 Sylvana Frigoli [YR] [CH] – Vinur frá Minni-Völlum 5.63
PREL 5.5 – 5.7 – 6.2 – 5.3 – 5.7
29: 065 Katie Brumpton [YR] [FI] – Bjartur frá Mosfellsbæ 5.60
PREL 5.8 – 5.7 – 5.3 – 5.8 – 5.2
30: 174 Lisa Staubli [YR] [CH] – Fróði frá Litlalandi 5.57
PREL 5.5 – 5.2 – 5.7 – 5.7 – 5.5
31: 042 Kurt Keppens [BE] – Samson von Lucahof 5.53
PREL 5.2 – 5.8 – 5.7 – 5.0 – 5.7
32: 014 Teitur Árnason [YR] [IS] – Glaður frá Brattholti 5.50
PREL 5.7 – 5.8 – 5.0 – 5.5 – 5.3
33: 034 Marie Lichtenegger [YR] [AT] – Gustur frá Syðra-Vallholti 5.33
PREL 6.0 – 5.0 – 5.8 – 4.5 – 5.2
34: 017 Valdimar Bergstað [YR] [IS] – Orion frá Lækjarbotnum 5.27
PREL 5.3 – 4.8 – 5.7 – 5.5 – 5.0
35: 071 Laurent Picard [FR] – Lýsingur de des Matalys 5.17
PREL 4.7 – 5.0 – 5.5 – 5.2 – 5.3
36: 040 Dennis Fransen [YR] [BE] – Skór von Ravenstein 5.10
PREL 5.0 – 5.0 – 5.5 – 5.3 – 5.0
37: 095 Charlotte Cook [GB] – Glymur frá Sauðárkróki 4.97
PREL 5.7 – 5.0 – 5.2 – 4.3 – 4.7
38: 166 Kathryn Love [US] – Pegasus frá Skyggni 4.93
PREL 4.8 – 4.8 – 5.2 – 5.3 – 4.3
39: 046 Victoria Stoncius [YR] [CA] – Freisting von Wotanshof 4.83
PREL 4.8 – 5.0 – 5.7 – 4.2 – 4.7
40: 106 Patricia Fleming [LU] – Rektor frá Stóru-Gröf ytri 4.60
PREL 4.7 – 4.8 – 3.8 – 4.3 – 5.0
41: 104 Marion Niederkofler [YR] [IT] – Loki frá Þverspyrnu 4.57
PREL 4.7 – 4.5 – 4.8 – 4.5 – 4.3
42: 167 Sharon Johnson [US] – Gnýfari von Wiesenhof 4.40
PREL 4.3 – 4.7 – 4.2 – 4.8 – 3.5
43: 045 Victoria Goldie [YR] [CA] – Brynja von Neddernhof 3.80
PREL 3.8 – 3.8 – 3.3 – 4.0 – 3.8
— 097 Jemimah Adams [GB] – Draupnir frá Vallanesi DISQUALIFIED
PREL 0.0 – 0.0 – 0.0 – 0.0 – 0.0
— 125 Agnes Helga Helgadottir [NO] – Glóðís fra Toven DISQUALIFIED
PREL 0.0 – 0.0 – 0.0 – 0.0 – 0.0
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH