HM2009: Tólf hestar undir 23 sekúndum
Fimm hestar hlupu undir 22,0 sekúndum í tveimur fyrri sprettum í 250 m skeiði á HM09. Sjö til viðbótar fóru undir 23 sekúndum. Sem sagt: Tólf hestar undir 23 sekúndum á sömu kappreiðunum. Ótrúlegur árangur. Fjórir af fimm knöpum á fljótustu hestunum eru Íslendingar.
Beggi Eggertsson á Lótus frá Aldenghoor, sem keppir fyrir Ísland, er með besta tímann, 21,01 sekúndu. Það er vallarmet í Brunnadern og persónulegt met Begga. Annar íslenskur knapi, sem keppir fyrir Svíþjóð, Guðmundur Einarsson á Sprota frá Sjávarbort, er einnig með frábæran tíma, 21,33 sekúndur. Jens Füchtenschnieder, Þýskalandi, á Keimi frá Votmúla 1 er með þriðja besta tímann, 21.38 sekúndu.
Keimur fór á 21,5 sekúndu í fyrri sprettinum og Lótus á 21,45. Það var því mikil spenna í seinni sprettinum, þar sem þeir hlupu saman. Það lítur út fyrir að Lótus sé töluvert sterkari hestur, því það dró heldur í sundur með þeim á síðustu metrunum.
Völlurinn í Brunnadern er greinilega mjög kappreiðavænn. Góðir tímar náðust þar fyrr í sumar. Í dag var um 30 stiga hiti þegar hlaupin fóru fram. Hægur andvari á móti, sem gaf súrefni. Kjöraðstæður segja þeir sem best vita. Á morgun spáir vætu, þrumum og eldingum. Seinni sprettir fara fram á klukkan þrjú síðdegis.
Röð í 250 m skeiði eftir fyrri umferð:
01: 001 Bergþór Eggertsson [WC] [IS] – Lótus van Aldenghoor 21.01″
1ST 21.45
2ND 21.01
02: 147 Guðmundur Einarsson [SE] – Sproti frá Sjávarborg 21.33″
1ST 21.55
2ND 21.33
03: 076 Jens Füchtenschnieder [DE] – Keimur frá Votmúla 1 21.38″
1ST 21.50
2ND 21.38
04: 120 Sigurður Marinusson [NL] – Eilimi von Lindenhof 21.68″
1ST 21.92
2ND 21.68
05: 145 Anna Skúlason [SE] – Lúta frá Dalbæ 21.90″
1ST 0.00
2ND 21.90
06: 084 Melanie Müller [DE] – Bjarkar frá Þverá, Skíðadal 22.34″
1ST 0.00
2ND 22.34
07: 085 Nicole Mertz [DE] – Óðinn von Moorflur 22.38″
1ST 0.00
2ND 22.38
08: 118 Noortje de Laat [NL] – Máni frá Innri-Kleif 22.72″
1ST 22.72
2ND 0.00
09: 017 Valdimar Bergstað [YR] [IS] – Orion frá Lækjarbotnum 22.85″
1ST 22.85
2ND 0.00
10: 032 Liselotte Pritz [AT] – Baugi von Panoramahof 22.86″
1ST 0.00
2ND 22.86
10: 171 Christian Indermaur [CH] – Brynjar frá Árgerði 22.86″
1ST 0.00
2ND 22.86
12: 028 Hannah Chmelik [YR] [AT] – Náttdís von Eylershof 22.99″
1ST 24.08
2ND 22.99
13: 058 Malu Logan [DK] – Skyggnir frá Stóru-Ökrum 23.10″
1ST 23.10
2ND 0.00
14: 079 Josefin Maier [YR] [DE] – Prins 24.39″
1ST 0.00
2ND 24.39
15: 061 Tania H. Olsen [DK] – Sólon fra Strø 24.86″
1ST 0.00
2ND 24.86
16: 117 Marjolein Strikkers [NL] – Erró frá Vallanesi 25.01″
1ST 0.00
2ND 25.01
17: 071 Laurent Picard [FR] – Lýsingur de des Matalys 28.14″
1ST 29.58
2ND 28.14
— 003 Erlingur Ingvarsson [IS] – Máttur frá Torfunesi 0.00″
1ST 0.00
2ND 0.00
— 029 Ida-Lena Zoglmann [YR] [AT] – Kveikja frá Arnarstöðum 0.00″
1ST 0.00
2ND 0.00
— 062 Thomas Vilain Rørvang [YR] [DK] – Kátína von Faxaból 0.00″
1ST 0.00
2ND 0.00
— 182 Thomas Haag [CH] – Risi von Schloß Neubronn 0.00″
1ST 0.00
2ND 0.00
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH