Hnakkar og reiðtygi tekin ófrjálsri hendi

  • 5. apríl 2011
  • Fréttir
Hnakkar og reiðtygi tekin ófrjálsri hendi

Þessi slæmu tíðindi fékk Eiðfaxi send frá hestamanni á Selfossi.

„Aðfaranótt 5. apríl var brotist inn í hesthús á Selfossi og þaðan teknir sex hnakkar ásamt miklu magni af beislum, múlum og öðrum
fylgihlutum. Þar sem hér er um umtalsvert tjón að ræða fyrir eiganda þá er lagt mikið upp úr því að finna reiðtygin aftur.

Ef einhver hefur orðið var við að verið sé að selja notuð reiðtygi í einhverju mæli þá er viðkomandi beðin um að hafa samband við
lögregluna á Selfoss í síma 480 1010 .“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link