„Hnokki er öðlingur og hæfileikabomba“
Hnokki frá Eylandi, knapi er Helga Una Björnsdóttir. Mynd: Aðsend
Þau Davíð Matthíasson og Rut Skúladóttir hafa um árabil stundað hrossarækt sína sem kennd er við jörðina Eyland sem er staðsett 5 km fyrir utan Hvolsvöll, í V-Landeyjum. Ræktunin er ekki stór í sniðum en eftir sem áður hafa þau náð eftirtektarverðum árangri á síðustu árum og fjöldi hrossa úr þeirra ræktun skilað sér inn á kynbótabrautina og keppnisvöllinn með góðum árangri.
Eiðfaxi tók hús á þeim Davíð og Rut og fyrst var spurt um hversu mörg hross í þeirra eigu væru í þjálfun í vetur. „Í augnablikinu eru níu hross á járnum, þar af fjögur í hesthúsinu hjá okkur í Reykjavík þar sem Henna Sirén hefur séð um tamningar og þjálfun með miklum sóma“ segja þau. „Síðan erum við heppin að vinna með fleiri frábærum þjálfurum í ár eins og Helgu Unu, Aðalheiði Önnu, Hönnu Rún og Klöru Sveinbjörns. Þau hross sem eru inni eru nánast öll fjögurra og fimm vetra svo það verður gaman að sjá hvernig þau þróast í vetur. Við bindum töluverðar vonir við Örk frá Eylandi sem er dóttir Öskju frá Mykjunesi og Ölnis frá Akranesi. Síðan erum við spennt að fylgjast með Víkingi frá Eylandi syni Vökuls frá Efri-Brú sem er glæsilegur stóðhestur á fimmta vetur. Svo eru tvær hryssur á fjórða vetur undan Konsert frá Hofi og Arði frá Brautarholti sem við bindum miklar vonir við.“

Víkingur frá Eylandi. Mynd: Aðsend
Að öðrum hrossum ólöstuðum þá hefur stóðhesturinn Hnokki frá Eylandi verið flaggskip Eylandsbúsins síðustu misseri og fékk hann m.a. 8,94 í aðaleinkunn án skeiðs í kynbótadómi síðasta sumar. Þau Davíð og Rut eru eðlilega stolt af sínum hesti. „Hann Hnokki okkar er algjör öðlingur og hæfileikabomba. Hann hefur staðið sig vel á kynbótabrautinni og hlaut í fyrra 9.26 fyrir hæfileika sem klárhestur, þar af 9.5 fyrir tölt, brokk, stökk og samstarfsvilja. Einnig hefur Helga Una aðeins mátað hann á keppnisbrautinni með góðum árangri en þau voru í úrslitum í fjórgangi meistara á stærsta íþróttamóti ársins í fyrra og klárinn þá aðeins sjö vetra gamall. Hnokki er nú reyndar ekki í húsinu hjá okkur og dvelur stærsta hluta árs hjá Helgu Unu á Fákshólum sem hefur staðið sig gríðarlega vel með hann að öllu leyti.“

Tindur frá Eylandi, knapi er Sigurður V. Matthíasson. Mynd: Aðsend
Fleiri góðir stóðhestar hafa komið til dóms á síðustu árum með góðum árangri og nægir í því sambandi að nefna Tind frá Eylandi (ae. 8,53) undan Sæ frá Bakkakoti og Veru frá Ingófshvoli og Varúlf frá Eylandi (ae. 8,34) undan Kjerúlf frá Kollaleiru og Vöku frá Árbæ en bæði Tindur og Varúlfur eru nú haldnir á vit nýrra ævintýra á erlendri grundu. „Tindur hefur staðið sig afar vel með knapa sínum Sigurði Matthíassyni hvort sem er í íþrótta eða gæðingakeppni, ásamt því að vera kynbótadæmdur með hátt í 9 fyrir hæfileika og er mikil eftirsjá í honum en hann mun án efa reynast nýjum eigendum vel í Austurríki. Síðan fór Varúlfur frá Eylandi til nýrra eiganda í Svíþjóð í haust. Okkur hefur gengið afar vel að selja hross úr ræktuninni og má segja að við höfum selt allt sem hefur verið falt og meira til svo það er visst lúxusvandamál.“

Reisulegt folald úr Eylandsræktuninni. Mynd: Aðsend
Sumarið 2020 fæddust sex folöld hjá þeim Davíð og Rut. Er eitthvað folald í þeim hópi sem þeim líst sýnu best á og hvaða stóðhesta notuðu þau síðasta sumar? „Okkur lýst mjög vel á tvo Hnokkasyni undan þeim Öskju frá Mykjunesi og Hátíð frá Fellskoti. Einnig er mjög álitlegt merfolald undan Dagfara frá Álfhólum og Hnátu frá Hábæ. Hvað stóðhestanotkunina varðar þá fórum við vítt og breitt en segja má að við höfum lagt dálítið mikla áherslu á klárhesta í stóðhestavalinu. Við notuðum Sólfaxa frá Herríðarhóli, Ljúf frá Torfunesi, Borgfjörð frá Morastöðum, Viðar frá Skeiðvöllum, Frama frá Ketilsstöðum og síðan eru fjórar hryssur fengnar við Hnokka okkar frá Eylandi.“
En á hvað leggja þau Davíð og Rut mesta áherslu í sinni hrossarækt? „Geðslagið finnst okkur skipta höfuðmáli, að hrossin séu kjörkuð og samvinnufús. Einnig leggjum við upp úr að rækta hross sem eru fasmikil, skrefstór með góð gangskil og sterkar gangtegundir sem nýtast á keppnisbrautina og til útreiða. Við leitumst við að finna álitlega stóðhesta til notkunar út frá þessum áherslum og byrjum nú yfirleitt að spá í þeim málum snemma vetrar en förum í marga hringi þar til niðurstaða næst. Næsta sumar langar okkur að nota Ský frá Skálakoti, Hrannar frá Flugumýri, Sjóð frá Kirkjubæ, Skagann frá Skipaskaga, Álfaklett frá Syðri-Gegnishólum og Ísak frá Þjórsábakka svo það verður viss áhersla á alhliðahesta sem þegar hafa sannað sig sem kynbótagripir. Síðan notum við vafalaust hann Hnokka frá Eylandi líka“ segja þau Davíð og Rut að endingu.
Eiðfaxi þakkar þeim kærlega fyrir spjallið og óskar þeim góðs gengis í ræktuninni á næstu árum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH