Hófadynur Geysis
Hófadynur Geysis er þriggja móta röð þar sem einstaklingar safna stigum í gegn um mótaröðina. Tíu efstu sæti í hverri grein fá stig sem sem telja til samanlagðs árangurs í mótaröðinni.
Einungis verða riðin A-úrslit þar sem sex efstu úr forkeppni etja kappi. Knapar í sjöunda til tíunda sæti fá stig miða við árangur þeirra úr forkeppni.
Mótið er opið, keppt í einum flokki og tveir inn á í einu í forkeppni nema að sjálfsögðu í töltfimi þar sem ætíð er einn inn á velli í senn.
Fimm dómarar dæma og dettur hæðsta og lægsta einkunn út.
Glæsileg verðlaun verða veitt sigurvegurum einstakra mót og heildarsigurvegara mótaraðar
Hvert mót um sig er sjálfstæð keppni þar sem hart verðu barist um sigur ekki síður en í keppninni um heildarsigurvegara. Aðgöngumiðar á mótin verða happadrættismiðar í leiðinni og verður dregið úr miðapottinum á hverju móti. Í boði eru veglegir vinningar, folatollar og fleira. Á síðasta móti verða einnig boðnir upp folatollar undir nokkra af bestu stóðhestum landsins.
Fyrsta mótið er fjórgangur, miðvikudagskvöldið 21. Febrúar, annað mótið Töltfimi verður haldið 4. Febrúar og það þriðja Fimmgangur verður haldið 18. Febrúar.
Öll mótin fara fram í Rangárhöllinni á Gaddstaðaflötum.
Skráning verður á heimasíðu Geysis, wwwhmfgeysir.is, og verður nánar auglýst síðar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH