Hófadynur Geysis
“Nú er komið að móti nr 2 af þremur í mótaröðinni Hófadynur Geysis og nú verður keppt í fimmgangi föstudaginn 8.mars 2013 og hefst klukkan 18:00. Þriðja og síðasta mótið verður töltfimi og verður haldið 10.apríl.
Nánar auglýst síðar.
100.000 kr. verðlaun verða fyrir 1. sæti, samanlagt úr öllum mótunum.
50.000 kr. verðlaun verða fyrir 2. sæti, samanlagt úr öllum mótunum.
25.000 kr. verðlaun verða fyrir 3. sæti, samanlagt úr öllum mótunum.
Aðgangseyri verður 500 kr. og gildir miðinn sem happdrættismiði, dregið verður úr seldum miðum á seinasta mótinu. Mjög veglegir vinningar.
Skráning er hafin og fer fram á heimasíðu Geysis www.hmfgeysir.is (þar ýtir þú á hnappinn skráningarkerfi, velja skráning, svo mót,svo félag(Geysir) síðan fylla út alla reiti).
Skráningu lýkur fimmtudaginn 07.03.13 kl 23:59. Skráningargjald er 4000 kr og greiðist um leið og skráð er.
Ef vandræði koma upp er hægt að hringja í 8637130 ÁÐUR en skráningu lýkur.
Aðalstyrktaraðili er:
Búaðföng ehf Stórólfsvöllum 860 Hvolsvöllur sem gefur að auki veglegan verðlaunagrip fyrir samanlagðan sigurvegara.
Aðrir styrktaraðilar eru:
1. Hrossaræktarbúið Velli. Arndís Pétursdóttir Velli 2 861 Hvölsvöllur.
2. Kanslarinn. Dynskálum 10c 850 Hella.
3. Bílaþjónustan. Dynskálum 24 850 Hella.
4. Bílaverkstæðið Rauðalæk ehf. Rauðalæk 851 Hella.
5. Pakkhúsið Hellu ehf. Suðurlandsvegi 4 850 Hella.
6. Sláturfélag Suðurlands/Guðmundur Svavarsson. Ormsvelli 8 860 Hvolsvöllur.
7. Baldvin og Þorvaldur. Austurvegi 56 800 Selfoss.
8. Hótel Rangá. Suðurlandsvegi 851 Hella.
9. Hestheimar ehf. Hestheimum 851 Hella
10. Steinsholt sf. Suðurlandsvegi 1 850 Hella
11. Mjólkursamsalan MS. Bitruhálsi 1. 110 Rvk
12. Sláturhúsið Hellu ehf. Suðurlandsvegi 8. 850 Hella
13. Kökuval ehf. Þingskálum 4 850 Hella
Aðrir styrkir:
Glerverksmiðjan Samverk Hellu 9 stk. verðlaunagripir
Hrossaræktarbúið Eystra-Fróðholti folatollur undir Arion frá Eystra-Fróðholti
Hrossaræktarbúið Árbæjarhjáleigu folatollur undir Jarl frá Árbæjarhjáleigu
Hrossaræktarbúið Kirkjubæ folatollur undir Sjóð frá Kirkjubæ
Hrossaræktarbúið Ármóti folatollur undir Son frá Kálfhóli
Hrossaræktarbúið Hákoti folatollur undir Hrafnagaldur frá Hákoti
Hrossaræktarbúið Miðkot folatollur undir Stæl frá Miðkoti
Hestasundlaugin Áskoti gefur 10 tíma í sund,“ segir í tilkynningu frá nefndinni
|
|||||||
|
|
||||||


Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH