Hófar – Þrettán hross hlutu í einkunn 9,5
Þór frá Stóra-Hofi er einn af þeim sem hlaut 9,5 fyrir hófa á árinu
Nú þegar kynbótasýningum er lokið hér heima og einungis ein sýning er eftir í Evrópu er gaman að renna yfir níufimmur og tíur ársins í einstökum eiginleikum. Næsti eiginleiki sem við tökum fyrir hér á vef Eiðfaxa eru hófar.
Til þess að fá glögga mynd af því eftir hverju er verið að leita þegar eiginleikinn er metin er gripið niður í stigunarkvarða einstaklingadóma og lýsing á einkunninni 9,5-10 í þeim eiginleikum sem teknir eru fyrir hverju sinni.
Alls hlutu þrettán hross á árinu einkunnina 9,5 fyrir hófa en ekkert hross hlaut einkunnina 10,0 í ár.
Hófar
Við mat á hófum er skoðuð lögun hófanna og útlit bæði að framan og frá hlið sem og hvernig þeir er að neðanverðu, þ.e. hvelfing hófbotns, þykkt hæla og lögun hóftungu. Til þess að sem réttust mynd fáist af upplagi hófa er mikilvægt að þeir séu eðlilegir að vexti og vel hirtir. Rétt lagaðir hófar eru samhverfir, jafnir að lögun frá hófhvarfi og niður að neðri brún hófs en þó er tekið tillit til eðlilegs fráviks á milli innri og ytri hluta hófsins þar sem innri hlið má vera lítið eitt brattari en sú ytri. U.þ.b. sami halli er á tá og hæl og bæði fram- og afturhófar víkka lítillega frá hófhvarfi og niður. Halli á tá og hæl skal endurspeglast af halla kjúku og æskileg lengd hæls er 30-50% af lengd táar. Aftasti hluti hæla skal vera því sem næst samsíða breiðasta hluta hóftungu.
9,5 – 10
Afar öflugir, rétt lagaðir og heilbrigðir hófar. Hófveggur er þykkur og burðarmikill, sléttur og jafn. Hófhvarfið er breitt og hófurinn breikkar hæfilega niður að neðstu brún. Hælar eru þykkir, burðarmiklir og hæfilega langir með traustum hælstoðum og halli þeirra er hæfilegur. Þófar eru jafnir og breiðir, hófbotn er þykkur, hvelfdur og samhverfur og hóftunga er jafnvaxin og heilbrigð.
Listi yfir þau hross sem hlutu 9,5 fyrir hófa
| Nafn | Uppruni | Einkunn |
| Möttull | Túnsbergi | 9,5 |
| Mári | Hvoli II | 9,5 |
| Hagur | Helgatúni | 9,5 |
| Þór | Stóra-Hofi | 9,5 |
| Lyfting | Rauðalæk | 9,5 |
| Askur | Enni | 9,5 |
| Rökkvi | Rauðalæk | 9,5 |
| Mirra | Tjarnastöðum | 9,5 |
| Suðurey | Skíðbakka III | 9,5 |
| Kunningi | Hofi | 9,5 |
| Sæli | Skíðbakka III | 9,5 |
| Óskar | Flekkudal | 9,5 |
| Aría | Haukholtum | 9,5 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH