HÓLA-MÓTIÐ
HÓLA – MÓTIÐ
í hestaíþróttum
Opið WR – mót á vegum UMSS haldið að Hólum í Hjaltadal 22. – 24. Maí.
Skráning í sportfeng stendur til 24:00 sunnudaginn 17. maí.
Skráning á eftirfarandi slóð: http://skraning.sportfengur.com/ – þar er valið mót og
síðan er valið hestamannafélag sem heldur mót, en það er Stígandi o.s.frv.
Keppt verður í öllum greinum hestaíþrótta og áhugamenn eru sérstaklega hvattir til að mæta og taka þátt.
Hin árlega reiðsýning þriðja árs nema við Hólaskóla fer fram á laugardeginum í tengslum við mótið.
Við hvetjum keppendur að kynna sér nýjar reglur.
http://www.hidi.is/uploads/5/0/6/7/5067893/lagabreytingar2015.pdf
http://www.hidi.is/uploads/5/0/6/7/5067893/bannlisti_mars2015_%C3%ADslenska.pdf
Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður greinar og flokka ef ekki næst nægileg þátttaka.
Nánari dagskrá verður auglýst þegar skráning liggur fyrir.
Hestaíþróttaráð UMSS
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH