Hólanemar kynna lokaverkefni sín

  • 3. maí 2013
  • Fréttir
Hólanemar kynna lokaverkefni sín

Diplómunemar í þjálfun og reiðkennslu hafa í gær og í dag verið að kynna lokaverkefni sín, sem þeir hafa unnið undir handleiðslu Helgu Thoroddsen. Nemarnir eru alls 19 og unnu ýmist einir eða tveir saman, þannig að alls voru verkefnin 13. Viðfangsefnin voru margvísleg, eins og sjá má af meðfylgjandi lista:

 
toppurr

 

dagur2_2

Teygjur og æfingar fyrir knapa (veggspjöld)

Þjálfun hrossa með sjúkrasögu

Slaktaumatölt 
Þjálfunarstig 
Að velja sér hest við hæfi
Um víðan völl (náttúran sem þjálfunarvöllur)
Svo er hestur sem hann er hafður 
Fimleikar á hesti 
Hestaviska
Hvernig á ég að kenna þér? (Greining og mat á reiðnemum)
Hringteymingar
Kynbótasýningar á fjögurra vetra hrossum
Hvernig er best að kenna knöpum að nota ábendingar?

 

dagur1_9

Að sögn Helgu lögðu nemendur mikla vinnu í verkefnin og stóðu sig með mikilli prýði. Afraksturinn er í mörgum tilfellum tilbúið fræðsluefni sem mun nýtast höfundunum og öðrum í leik og starfi með íslenska hestinum í framtíðinni.

 

dagur2_3

Myndir: Helga Thoroddsen. Fleiri á Facebook.

 

 

meira um þetta  á vef Hólaskóla

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link