Hollywoodstjarna í íslandshestamennsku
Hann er þekktur fyrir hlutverk sitt í myndum eins og National Lampoon Vacation og The Three Amigos. En þetta eru myndir sem flestir Íslendingar þekkja.
Færri vita þó að Chevy Chase er eigandi tveggja íslenskra hesta.
„Við fjölskyldan eigum tvo íslenska hesta sem bera nöfn sem ekki er hægt að bera fram og kalla ég þá því Bob og Candy“ Segir Chevy.
Hrifning hans á hestum má rekja til afa hans, Edward L. Chase sem var listamaður sem skrifaði meðal annars The Big Book of Horses
Nokkrar af teikningunum í þeirri bók voru byggðar á ljósmyndum af föður Chevy við útreiðar þegar hann var ungur drengur .
Chase býr nú í Bedford í New York fylki á litlum bæ með fjölskyldu sinni og hestunum tveimur.
„Náinn vinur ættingja hans er íslenskur, hafði þá flutt þessi hross frá Íslandi sérstaklega fyrir okkur“. Ég lít mjög undarlega út þegar ég sit á þeim , ég er yfir 190cm og því hanga fæturnir niður undir jörðu“ segir Chevy.
Dóttir hans Caley keppir sem dæmi í árlegum kappreiðum á skeiði sem haldnar eru í Bedford. „Ég er mest að þjónusta mæðgurnar , keyri þær og held í hestana fyrir konuna mína og dætur , en ég er mjög sáttur við það hlutskipti!“ segir hann.
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð
Styttu haustið með EiðfaxaTV