Hópreið að Hafravatni á laugardag

  • 10. maí 2011
  • Fréttir
Hópreið að Hafravatni á laugardag

Ferðanefnd  Andvara boðar til hópreiðar laugardaginn 14. maí. Lagt verður af stað frá félagsheimili  Andvara kl. 13. 

„Riðið skal sem leið liggur að Rauðavatni og eftir frábærum reiðstígum  að Hafravatni. Áð verður í rétt norðanmegin við vatnið og svo til baka austur fyrir Hafravatn.

Áætlaður reiðtími er ca. 2 til 2½  klst. hvora leið.

Við Hafravatn  verður boðið uppá grillaðar pylsur og kók, jafnvel einn og einn bauk að ógleymdum vöfflum í eftirrétt, allt að sjálfsögðu  gegn vægu gjaldi. 

Sumarið er komið og engin ástæða til að láta sig vanta í slíka ferð, það er  jafnvel spáð  snjóléttari degi en í síðustu ferð. Sjáumst  hress og kát,“ segir í tilkynningu frá ferðanefnd Andvara.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link