Hópreið ferðanefndar Andvara – ferðasaga Halldórs Halldórssonar
Ferðanefnd Andvara stóð fyrir ferð í Kaldársel laugardaginn 30. apríl, lagt skyldi af stað kl. 14:00 frá félagsheimili Andvara. Aðfaranótt laugardags hafði snjóað þannig að hvítt var yfir, en götur til þess að gera auðar, en áfram dritaði hann þó úr sér. Um kl. 13:30 hringdi sá er þetta ritar í Steina Páls. yfir ferðafrömuð Andvara og spurði álits á framhaldinu. Við förum sagði Steini, fór inn eftir með bílinn áðan, allar götur auðar, en til stóð að grilla pilsur ofl. huggulegt. Jæja sagði ég, en mér sýnist snjóþekja á reiðveginum um Smalaholtið, iss það er ekkert var svarið.
Fólk fór að safnast saman við félagsheimlið um kl. 14:00 og lagt var af stað um korteri síðar alls 12 manns. Steini þú stjórnar þessu og ríður á undan, riðið er út miðgötu að Heimsenda, á reiðveg í Vatnsendahlíð og áleiðis að Elliðavatni. Þegar komið er að afleggjurum að sumarbústöðunum í Vatnsendhlíðinni beygir Steini skyndilega til vinstri með stefnu á svalir eins raðhússins við Gulaþing og formannsfjölskyldan með honum. Hvert ertu að fara Steini kallaði ég ertu ekki með GPS, heyrði ekki almennilega hverju hann svaraði heyrðist það vera eitthvað um „ konu dagsins „. Þegar hér var komið var ég komin í forreið, riðið var sem leið lá út með Elliðavatni í alveg þokkalegu færi. Beygt var nú upp Dóradrög, þ.e. reiðvegurinn frá Þingnesi að Heiðmerkurhliðinu á línuveginum, talsverð snjóþekja var á Dóradragi. Með skarpri reið hlóðst ekki svo mjög í hófa og þannig riðið í Tunguhvamm. Í Tunguhvammi réðu menn ráðum sínum, 5-10 cm snjóþekja var orðin á Tungustíg (reiðvegur úr Tunguhvammi að Hjöllum), ekkert vit var í að halda áfram för öðruvísi en að leggja heilsu hesta og manna í hættu.
Ákveðið var að snúa við og fara hringinn umhverfis Elliðavatn þar eð mun minni snjóþekja var þar og vegurinn því sem næst auður.
Ferðin umhverfis vatnið gekk í alla staði vel og í lok ferðar voru grillaðar pylsur í félagsheimilinu.
H.H.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH