Horfir í góð jól
Eiðfaxi kom í verslunina „Hestar og menn“ í Ögurhvarfi á dögunum. Þar var líf og fjör, enda hestamenn að græja sig upp fyrir veturinn og að leita að jólagjöfum. Rúna Helgadóttir hestakona var á fullu að afgreiða viðskiptavini og sagði að nóg væri að gera.
Það er ein úlpa sem er að slá í gegn, kallarnir eru að kaupa hana handa konunum sínum segir Rúna og sýnir blaðamanni úlpuna góðu.
Verslunin „Hestar og menn“ er sérstaklega hlýleg og skemmtilega innréttuð. Notalegt kaffihorn er vinsælt, hestamenn hittast gjarnan þar til að fara yfir stöðuna.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári