HorseDay heimsækir Nils Christian á Kronholt
Í ferð sinni til Þýskalands og Danmerkur leit HorseDay við hjá Nils Christian Larsen í Kronholt í Danmörku og fengu þar frábærar móttökur. Farið var yfir hestakostinn í hesthúsinu og starfsemina þar. Líflegar sögur og brandarar voru ekki af skornum skammti hjá hinum bráðskemmtilega Nils og hefði það eitt verið næg ástæða til heimsóknar.
„Tilgangur þessarar heimsóknar aftur á móti var að skyggnast inn í hans starfsemi í hestamennsku og átta okkur betur á eftirspurn hestamanna á við hann. Markmið okkar hjá HorseDay er að búa til tól sem hentar öllum hestamönnum að halda utan um sína hestamennsku og því er dýrmætt fyrir okkur að kynnast sem flestum hliðum hestamennskunnar og átta okkur á mismunandi þörfum. Starfsemi Nils gengur að mestu út á að þjálfa, rækta og selja hesta. Í kringum þess háttar vinnu fylgir mikið utanumhald og minntist Nils á að vera með blöð og lista fyrir allt eins og þjálfun, járningar, dýralækna heimsóknir og merar sem koma undir hesta.“
Nú þegar býður HorseDay upp á auðvelt utanumhald fyrir daglegar athafnir eins og þjálfun, járningar og dýralækna heimsóknir og fylgja þessar upplýsingar hestinum út ævina á sama staðnum. Þegar eru farnar af stað hugmyndir á útfærslum til að aðstoða ræktendur við utanumhald á stóðhestum og merum, sem Nils talaði sérstaklega um að væri mikil vinna og umstang.
Myndbandið sýnir enn frekar frá heimsókninni og þessum hugleiðingum, njótiði!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH