Horses of Iceland bjóða frítt í HorseDay höllina
HÉR er hægt að sjá ráslista fyrir mótið en það stefnir allt í hörku spennandi keppni.
Horses of Iceland ætlar að bjóða áhorfendum frítt í stúkuna í HorseDay höllinni og hvetur stjórn deildarinnar alla til að þyggja boðið og fjölmenna í höllina.
Matur og veitingar verða í boði í veitingasal HorseDay Hallarinnar fyrir keppni og ef pantað er fyrir fram fylgir í kaupbæti frátekið sæti í stúkunni! Pantanir fara fram HÉR en nánari upplýsingar má fá á info@ingolfshvoll.is
Húsið og veitingasalan opnar kl. 17:00, hleypt verður inn í höllina kl. 18:15, upphitunarhestur fer í braut 18:30 og keppni hefst stundvíslega kl. 19:00. Einnig verður hægt að fylgjast með keppninni í beinni útsendingu á Alendis.
Steikarhlaðborð
- Hægeldað lambalæri.
- Hvítlauks- og timian ristaðar karöflur, bakað rótargrænmeti, bernés- og brún sósa.
- Sætkartöflusalat, döðlur og hnetur. Perlubyggsalat. Brokkolí- og trönuberjasalat og salat.
- Frátekið sæti á besta stað í stúkunni!
Verð 3.990kr.
Hamborgari, panini og léttar veitingar selt gestum og gangandi.
Pantanir á HÉR