Horses of Iceland – fréttatilkynning

  • 26. janúar 2021
  • Fréttir
Meistaradeild Líflands snýr aftur – Alendis TV streymir um allan heim

Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum 2021 hefst 28. janúar, en í ár verður deildin 20 ára! Öll mót Meistaradeildarinnar verða sýnd í beinni opinni útsendingu á RÚV2. Auk þess verður hægt að kaupa aðgang að beinu streymi og ýmis konar aukaefni á Alendis TV, þar sem einnig er hægt að horfa á ókeypis kynningarþætti.

  • Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum 2021 hefst 28. janúar, en deildin fagnar 20 ára afmæli í ár.
  • Öll mót Meistaradeildarinnar verða sýnd í beinni opinni útsendingu á RÚV2.
  • Auk þess verða öll mót Meistaradeildarinnar aðgengileg á streymisveitu Alendis TV með lýsingum á íslensku og ensku. 
  • Fyrir og eftir hvert mót sýnir Alendis TV viðtöl á ensku við sérfræðinga og greinendur, auk spekingahorns í hléi, sem er algjör nýjung. 
  • Einnig sýnir Alendis TV átta kynningarþætti um liðin sem keppa í Meistaradeild Líflands sem eru opnir öllum og hafa reynst vinsælir.
  • Alendis TV er sérdeild um hestaíþróttir innan OZ; nýsköpun í kófinu sem streymir íslenskum hestaíþróttum um allan heim.

 

Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum 2021 hefst 28. janúar, en í ár verður deildin 20 ára! Öll mót Meistaradeildarinnar verða sýnd í beinni opinni útsendingu á RÚV2. Einnig hafa Alendis TV og Meistaradeild Líflands gert með sér samstarfssamning sem felst í því að öll mót Meistaradeildarinnar verða aðgengileg á streymisveitu Alendis TV. Einnig verður boðið upp á ýmis konar aukaefni tengt hestaíþróttum.

 

Meistarastofan

Meistarastofan eru átta 20-mínútna þættir sem Alendis TV framleiðir fyrir Meistaradeild Líflands. Hver þáttur er tileinkaður einu liði. Kári Steinsson tekur viðtöl við knapana um væntingar þeirra og undirbúning fyrir keppnina, og hestana sem þeir ætla að keppa á.

 

Hægt er að horfa á þættina endurgjaldslaust á alendis.tv og Facebook og Instagram-síðum Alendis TV. Viðtölin eru á íslensku og textuð á ensku. Fyrsta þátturinn fór í loftið í byrjun desember og nú hafa fimm verið birtir. 

 

„Við förum í heimsókn til allra liða Meistaradeildar Líflands og ræðum við þau um hrossin þeirra og því sem þau stefna að,“ útskýrir Edda Hrund Hinriksdóttir, verkefnastjóri Alendis TV og framleiðandi þáttanna. Viðtökur hafa verið góðar og sérstaklega mikið um áhorf á Facebook, segir Edda, en áhorfstölur eru komnar í 55.000.

 

Viðtöl við sérfræðinga

Þegar mótin hefjast 28. janúar verður hitað upp með viðtölum við sérfræðinga og greinendur um ráslista og væntingar. Auk þess verður boðið upp á spekingahorn í hléi og eftir hvert mót verður farið yfir úrslitin.

 

„Við viljum færa kaffistofuumræðurnar yfir á á skjáinn, þannig að fólk geti kastað fram skoðunum og þess háttar, og búa til íþróttalegri umræðu í kringum Meistaradeildina eins og þekkjum frá fótboltanum og flestum öðrum íþróttum,“ útskýrir Edda. „Við höfum fengið gott fólk til liðs við okkur og Telma Tómasson verður þáttarstjórnandi,“ bætir hún við. Þetta verða beinar útsendingar og viðtölin verða á ensku. 

 

Keppnin hefst með fjórgangi á fimmtudaginn

Átta lið og 40 knapar munu keppa í átta mismunandi greinum í deildinni í vetur. Fjórgangur verður á dagskrá 28. janúar, slaktaumatölt 11. febrúar, fimmgangur 25. febrúar, gæðingafimi 11. mars, gæðingaskeið og 150-metra skeið 20. mars og tölt og 100-metra skeið 10. apríl, en þá verður einnig lokahátíðin haldin.  

 

RÚV2 sýnir beint frá keppni í öllum greinum. Alendis TV mun streyma útsendingum með lýsingum á íslensku og ensku og hægt verður að kaupa aðgang með dagspassa eða áskrift. Kaupendur fá þá aðgang að öllu efni Alendis TV, t.d. frá mótum síðasta árs.

 

Íslenski hesturinn heim í stofu með Alendis TV

„Við fórum fyrst í loftið síðasta vor í maí þegar við sýndum frá Hafnarfjarðarmeistaramótinu og í kjölfarið sýndum við frá öllum stórum mótum síðasta sumar. Þetta er í kringum 300 klukkutímar af efni,“ segir Edda. Útsendingar Alendis TV hafa reynst vinsælar bæði á Íslandi og erlendis.

 

Hægt er að kaupa myndbönd af ákveðnum knöpum og hestum til einkanota. „Keppendur geta skoðað sig aftur í tímann, hvað þeir gerðu vel hvað þeir geta bætt. Það hefur verið hellings sala á stökum vídeóum í vetur. Fólk sem vill selja getur keypt gott myndefni frá keppni þar sem hesturinn stóð vel og sýnt fram á að hann sé góð söluvara,“ útskýrir Edda. Notast er við fjarstýrðar myndavélar sem auðveldar umstang en kemur ekki niður á myndgæðum.

 

Það er margt framundan hjá Alendis TV. „Það er meira en nóg um að vera. Með Meistaradeild Líflands eru þetta sjö deildir sem við erum að sýna frá.“ Edda nefnir sem dæmi Meistaradeild æskunnar og Áhugamannadeildina. „Hún hefur verið mjög vinsæl síðustu ár og mikil stemmning í stúkunni. Þetta er í fyrsta skipti sem við sýnum frá svona mörgum af hinum deildunum og það verður spennandi að sjá áhorfin þar.“

 

Nýsköpun í kófinu

Jelena Ohm, verkefnastjóri Horses of Iceland, segir: „Alendis er frábært verkefni og dæmi um nýsköpum sem kom til bjargar á hárréttum tíma í COVID. Að senda út hágæða beinar útsendingar með þul á mismundandi tungumálum opnar margar dyr fyrir íslenska hestamennsku, úti um allan heim. Það verður spennandi að fylgjast með Meistaradeild Líflands í vetur og öllum skemmtilegu þáttunum sem Alendis býður upp á. Það verður eitthvað fyrir alla!“ Alendis er sérdeild um hestaíþróttir innan OZ, sem er alíslenskt fyrirtæki.

Um Horses of Iceland
Tilgangur markaðsverkefnisins Horses of Iceland er að byggja upp orðspor íslenska hestsins um heim allan til að leggja grunn að aukinni verðmætasköpun og útbreiðslu hestsins á heimsvísu.

  

Íslandsstofa sér um framkvæmd verkefnisins og starfar með verkefnastjórn sem skipuð er fulltrúum úr hestasamfélaginu, Félagi hrossabænda (FHB), Landssambandi hestamannafélaga (LH), Félagi tamningamanna (FT), auk útflutningsaðila og fulltrúa frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Mennta- og menningarmálaráðuneyti og Samtökum ferðaþjónustunnar. 

 

Vefsíða: www.horsesoficeland.is
Samfélagsmiðlar: Facebook, Instagram 

Nánari upplýsingar veitir Jelena Ohm, verkefnastjóri Horses of Iceland jelena@islandsstofa.is.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar